1. gr. Gildissvið. Fyrir leyfi Matvælastofnunar skv. 4. gr. reglugerðar nr. 327/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins nr. 1925/2006 um íblöndun vítamína og steinefna og tiltekinna annarra efna í matvæli, innheimtir stofnunin gjald af leyfisumsækjendum samkvæmt gjaldskrá þessari. 2. gr. Forskoðun. Matvælastofnun innheimtir gjald vegna forskoðunar á matvælum sem samanstendur af móttöku umsóknar, forskoðun, ákvörðun um áhættumat og umsýslu, kr. 16.696. 3. gr. Áhættumat. Matvælastofnun innheimtir í kjölfar forskoðunar gjald með eftirfarandi hætti vegna mats á áhættu, skoðunar á áhættumati, umsýslu og útgáfu leyfis. Kostnaður fer eftir því hvort og til hve margra utanaðkomandi sérfræðinga þarf að leita við áhættumatið. Aðgerð | Kostnaður | Mat Matvælastofnunar á áhættu (8 klst.) | 66.784 kr. | Mat Matvælastofnunar á áhættu – sams konar vara áður skoðuð (4 klst.) | 33.392 kr. | Mat áhættu og mat á umsögn/-um ytri aðila (4 klst.) | 33.392 kr. | Endurmat/-skoðun á áhættumati frá stjórnvaldi annars ríkis (4 klst.) | 33.392 kr. | Ritun rökstuðnings vegna ákvörðunar (2 klst.) | 16.696 kr. | Umsögn frá Rannsóknarstofu HÍ í næringarfræðum (8 klst.) | 76.000 kr. | Umsögn frá embætti landlæknis (8 klst.) | 80.000 kr. |
4. gr. Innheimta. Eindagi gjalda skv. gjaldskrá þessari er tvær vikur frá útgáfu reiknings. Ef reikningar eru ekki greiddir á gjalddaga er viðkomandi umsókn um leyfi vísað frá og hún felld niður. 5. gr. Annað. Gjaldskrá þessi er sett skv. heimild í 4. gr. reglugerðar nr. 327/2010 og 26. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli og öðlast þegar gildi. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 26. febrúar 2015. | F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, | Kristján Skarphéðinsson. |
Baldur Arnar Sigmundsson. |