Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 519/2013

Nr. 519/2013 4. júní 2013
REGLUGERÐ
um (2.) breytingu á reglugerð nr. 284/2011 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1152/2009 um setningu sérstakra skilyrða fyrir innflutningi á tilteknum matvælum frá tilteknum þriðju löndum vegna mengunaráhættu af völdum aflatoxína og um að fella úr gildi ákvörðun 2006/504/EB.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. og II. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007, frá 1. maí 2010, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 91/2013 um sérstök skilyrði fyrir innflutningi á jarðhnetum frá Gana og Indlandi, okru og karrílaufi frá Indlandi og vatnsmelónufræi frá Nígeríu og um breytingu á reglugerðum (EB) nr. 669/2009 og (EB) nr. 1152/2009.

2. gr.

Ofangreind reglugerð framkvæmdastjórnarinnar er birt sem fylgiskjal 3 við reglugerð nr. 518/2013 um (1.) breytingu á reglugerð nr. 835/2010 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 669/2009 um framkvæmd reglugerðar Evrópu­þingsins og ráðsins (EB) nr. 882/2004 að því er varðar aukið, opinbert eftirlit með innflutningi á tilteknu fóðri og matvælum, sem eru ekki úr dýraríkinu.

3. gr.

Allur kostnaður við opinbert eftirlit, þ.m.t. sýnataka, greining sýna, geymsla, förgun og allar aðrar ráðstafanir sem gripið er til skal greiddur af innflutnings- og dreifingaraðilum eftir því sem við á.

4. gr.

Innflutnings- eða dreifingaraðilar sem flytja inn eða dreifa vörum sem reglugerð þessi tekur til, skulu senda Matvælastofnun tilkynningu og gögn um fyrirhugaðan innflutning ásamt upplýsingum um áætlaðan komutíma.

5. gr.

Matvælastofnun hefur eftirlit samkvæmt 6. gr. laga nr. 93/1995 með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt.

6. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

7. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 4. júní 2013.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Baldur P. Erlingsson.

B deild - Útgáfud.: 5. júní 2013