Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
195/2010
|
Samkvæmt 19. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 hefur umhverfisráðherra þann 23. febrúar 2010 staðfest aðalskipulag Sveitarfélagsins Voga 2008-2028. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hefur málsmeðferð verið í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 og Skipulagsstofnun yfirfarið erindið og sent ráðherra til staðfestingar. Aðalskipulagið öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi aðalskipulag Vatnsleysustrandarhrepps 1994-2014 frá 16. nóvember 1994, með síðari breytingum. Umhverfisráðuneytinu, 23. febrúar 2010. Svandís Svavarsdóttir. Logi Kjartansson.
|
B-deild - Útgáfud.:
10. mars 2010
|