Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 613/2013

Nr. 613/2013 1. júlí 2013
AUGLÝSING
um undanþágu lögaðila frá gildissviði upplýsingalaga.

1. gr.

Forsætisráðherra hefur ákveðið, með vísan til 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, að fenginni tillögu hlutaðeigandi ráðherra, að Promens hf. skuli ekki falla undir gildissvið laganna og skal undanþágan endurskoðuð að fenginni umsögn Samkeppniseftirlitsins, þó eigi síðar en 1. janúar 2014.

2. gr.

Auglýsing þessi er birt samkvæmt heimild í 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og öðlast þegar gildi.

Forsætisráðuneytinu, 1. júlí 2013.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

Ragnhildur Arnljótsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 1. júlí 2013