Samkvæmt heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, og að fengnum tillögum umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar hefur lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu ákveðið: að eftirtaldar götur verði gerðar að vistgötum: Grjótagata Mjóstræti Brattagata Fischersund Vistgata er táknuð með umferðarmerkinu D14.11 vistgata. að stöðubann verði í Aragötu við vinstri kant miðað við akstursstefnu. Bannið er táknað með umferðarmerkinu B21.11
Ákvörðun þessi tekur gildi við birtingu auglýsingarinnar. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, 12. desember 2012. Stefán Eiríksson. |