Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 989/2011

Nr. 989/2011 27. október 2011
AUGLÝSING
um breytingu á reglum nr. 408/2007, um aðferðir við magngreiningu textíltrefjablandna.

1. gr.

Við 2. gr. reglnanna bætist nýr stafliður, e-liður, svohljóðandi:

  1. Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2009/122/EB frá 14. september 2009 um breytingu á II. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 96/73/EB um tilteknar aðferðir við magngreiningu textíltrefjablandna úr tveimur efnum í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum.

2. gr.

Við 3. gr. reglnanna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar og EB-gerðin, sem vísað er til í e-lið 2. gr., eru birtar í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB (ákvörðunin í 18. árgangi, hefti nr. 40 (14. júlí 2011), bls. 138). EB-gerðin er jafnframt birt sem fylgiskjal með reglum þessum.

3. gr.

Framangreindar breytingar, sem innleiða tilskipun 2009/122/EB og eru settar með heimild í 18. gr. laga nr. 57/2005, um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, öðlast þegar gildi.

Neytendastofu, 27. október 2011.

Tryggvi Axelsson.

Þórunn Anna Árnadóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 28. október 2011