I. KAFLI Útgáfa vegabréfa. 1. gr. Þjóðskrá annast útgáfu diplómatískra vegabréfa og þjónustuvegabréfa samkvæmt ákvörðun utanríkisráðuneytisins. 2. gr. Þessir aðilar einir geta fengið diplómatísk vegabréf: - Forseti Íslands.
- Fyrrverandi forsetar Íslands.
- Forseti Alþingis.
- Hæstaréttardómarar.
- Ráðherrar.
- Biskupinn yfir Íslandi.
- Starfsmenn utanríkisþjónustunnar skv. 1.-5. flokki 8. gr. laga nr. 39/1971 og þeir aðrir starfsmenn hennar sem reglur ráðuneytisins kveða á um.
- Ráðuneytisstjórar.
- Aðstoðarmenn forsætis- og utanríkisráðherra.
- Umboðsmaður Alþingis.
- Ríkisendurskoðandi.
- Ríkissaksóknari.
- Ríkissáttasemjari.
- Ríkislögreglustjóri.
- Ríkislögmaður.
- Bankastjóri og aðstoðarbankastjóri Seðlabanka Íslands.
- Nánustu fylgdarmenn forseta Íslands, þegar þeir eru í fylgd með forseta.
- Þeir sem gegna meiri háttar trúnaðarstörfum fyrir Ísland í fjölþjóðlegum ríkjasamtökum.
- Þeir listamenn sem um langt skeið hafa skarað fram úr á alþjóðavettvangi og öðlast hafa heimsfrægð. Ákvörðun er háð samþykki utanríkisráðherra.
- Fyrrverandi forsætis- og utanríkisráðherrar.
- Fyrrverandi starfsmenn utanríkisþjónustunnar úr 1. og 2. flokki, sbr. 8. gr. laga nr. 39/1971, sem látið hafa af störfum fyrir aldurs sakir.
- Makar þeirra sem taldir eru í 1.-21. tölul. og börn þeirra sem taldir eru upp í 7. tölul. en þó að því tilskildu að þau hafi ekki náð 20 ára aldri.
3. gr. Þessir aðilar einir geta fengið þjónustuvegabréf: - Alþingismenn.
- Skrifstofustjóri Alþingis.
- Hæstaréttarritari.
- Skrifstofustjórar í Stjórnarráði Íslands.
- Aðstoðarmenn ráðherra aðrir en þeir sem falla undir 9. tölul. 2. gr.
- Starfsmenn utanríkisþjónustunnar sem ekki eru taldir upp í 7. tölul. 2. gr.
- Kjörræðismenn Íslands erlendis, enda séu þeir íslenskir ríkisborgarar.
- Forstjórar helstu ríkisstofnana.
- Forseti borgarstjórnar Reykjavíkur.
- Borgarstjórinn í Reykjavík.
- Þeir sem ferðast í opinberum erindum ríkisstjórnarinnar, þegar sérstaklega stendur á og að því tilskildu að hlutaðeigandi ráðuneyti óski þess skriflega að vegabréf sé gefið út.
- Fulltrúar Íslands í stjórn, á þingum eða í starfsliði fjölþjóðlegra ríkjasamtaka.
- Þeir sem ferðast í erindum meiri háttar viðskiptasamtaka, þegar sérstaklega stendur á.
- Framkvæmdastjóri skrifstofu bankastjóra Seðlabankans.
- Fyrrverandi hæstaréttardómarar sem látið hafa af störfum fyrir aldurs sakir.
- Fyrrverandi ráðherrar.
- Fyrrverandi ráðuneytisstjórar sem látið hafa af störfum fyrir aldurs sakir.
- Fyrrverandi bankastjórar og aðstoðarbankastjórar Seðlabanka Íslands sem látið hafa af störfum fyrir aldurs sakir.
- Þeir sem gegnt hafa meiri háttar trúnaðarstörfum í fjölþjóðlegum ríkjasamtökum og látið hafa af störfum fyrir aldurs sakir.
- Makar þeirra sem taldir eru upp í 1.-19. tölul. og börn flutningsskyldra starfsmanna sem taldir eru upp í 6. tölul. en þó að því tilskildu að þau hafi ekki náð 20 ára aldri.
Ennfremur er heimilt að gefa út þjónustuvegabréf til handa fyrrverandi starfsmönnum utanríkisþjónustunnar sem ekki falla undir 21. tölul. 2. gr. þegar þessir starfsmenn hafa látið af störfum fyrir aldurs sakir. II. KAFLI Umsókn um vegabréf. 4. gr. Sækja ber um diplómatísk vegabréf og þjónustuvegabréf hjá utanríkisráðuneytinu. Gefa skal upplýsingar um fullt nafn, stöðu, heimilisfang, kennitölu, fæðingarstað, þjóðerni, hæð og kyn umsækjanda. Að öðru leyti skal beita reglugerð um íslensk vegabréf eftir því sem við á. III. KAFLI Gildistími vegabréfa, skil þeirra o.fl. 5. gr. Þegar diplómatísk vegabréf eða þjónustuvegabréf eru gefin út til ákveðinnar ferðar skulu þau eingöngu látin gilda fyrir þann tíma er ætla má að ferðin muni standa. Ella má láta vegabréf þessi gilda allt að fimm árum nema ljóst sé að réttur handahafa til diplómatískra vegabréfa eða þjónustuvegabréfa falli niður fyrir þann tíma. 6. gr. Nú hættir handhafi diplómatísks vegabréfs eða þjónustuvegabréfs að gegna starfi samkvæmt 2. eða 3. gr. og er honum þá skylt að afhenda utanríkisráðuneytinu eða næsta íslenska sendiráði, fastanefnd eða sendiræðisskrifstofu (sendiskrifstofu) vegabréf sitt. Sama á við um vegabréf maka vegabréfshafa og barna hans sem hafa fengið vegabréf samkvæmt 22. tölul. 2. gr. eða 20. tölul. 3. gr. Utanríkisráðuneytið getur gert undanþágu frá aldursákvæðum 22. tölul. 2. gr. og 20. tölul. 3. gr. þegar sérstakar ástæður eru fyrir hendi. 7. gr. Íslenskum sendiskrifstofum er heimilt að framlengja gildistíma diplómatískra vegabréfa og þjónustuvegabréfa ef brýna nauðsyn ber til og ekki er unnt að gefa út nýtt vegabréf í tæka tíð. Ekki er heimilt að framlengja gildistíma diplómatískra vegabréfa nema með heimild prótókollskrifstofu utanríkisráðuneytisins. Framlengja skal gildistíma vegabréfa með áritun til allt að sex mánaða. IV. KAFLI Gildistaka o.fl. 8. gr. Við útgáfu vegabréfa og móttöku og meðferð umsókna um diplómatísk vegabréf og þjónustuvegabréf skal að öðru leyti en að framan greinir beita ákvæðum reglugerðar um íslensk vegabréf eftir því sem við á. 9. gr. Reglur þessar, sem settar eru samkvæmt 1. gr. laga um vegabréf nr. 136/1998, öðlast gildi þegar í stað. Jafnframt falla úr gildi reglur nr. 55/2004 um diplómatísk vegabréf og þjónustuvegabréf. Utanríkisráðuneytinu, 10. júní 2011. Össur Skarphéðinsson. Einar Gunnarsson. |