Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 466/2007

Nr. 466/2007 30. apríl 2007
REGLUR
fyrir Háskólann á Akureyri.

I. KAFLI

Gildissvið o.fl.

1. gr.

Reglur þessar fyrir Háskólann á Akureyri eru settar af háskólaráði og gilda fyrir háskól­ann, þ.m.t. yfirstjórn, einstök svið og deildir sem og fyrir starfsfólk og nemendur.

Reglur þessar eru settar á grundvelli laga nr. 63/2006 um háskóla og laga nr. 40/1999 um Háskólann á Akureyri.

Reglur þessar teljast grundvallarreglur fyrir Háskólann á Akureyri. Þær eru til fyllingar settum lögum um skólann en ganga framar öðrum reglum settum af hálfu skólans.

II. KAFLI

Stjórnskipulag háskólans.

Yfirstjórn.

2. gr.

Háskólinn á Akureyri er ríkisháskóli og heyrir undir menntamálaráðuneytið en um hlut­verk skólans fjallar í 1. gr. laga nr. 40/1999 um Háskólann á Akureyri.

Til yfirstjórnar skólans teljast háskólaráð, rektor, framkvæmdastjóri og deildarforsetar.

Vissar ákvarðanir af hálfu yfirstjórnar kunna eftir atvikum að vera teknar á vettvangi framkvæmdastjórnar eða háskólafundar.

Við málsmeðferð og ákvarðanatöku af hálfu skólans skulu þar til bærir starfsmenn hans jafnan gæta laga, góðra stjórnsýsluhátta, jafnræðis og annarra málefnalegra sjónarmiða.

Háskólaráð.

3. gr.

Háskólaráð fer með æðsta ákvörðunarvald innan háskólans nema annað sé berum orðum tekið fram í lögum, en um skipan þess fer að lögum, sbr. 5. gr. laga nr. 40/1999.

Háskólaráð markar háskólanum heildarstefnu og hefur yfirumsjón með málefnum sem varða skólann almennt og stuðlar að, skipuleggur og hefur umsjón með samvinnu deilda og samskiptum við aðila utan skólans.

Forseti háskólaráðs boðar til funda lögum samkvæmt, sbr. 6. gr. laga nr. 40/1999, en eigi sjaldnar en mánaðarlega.

Rektor háskólans er forseti háskólaráðs en í fjarveru rektors gegnir varaforseti ráðsins störfum forseta, stýrir fundum, boðar til funda og fer með atkvæði sem forseti ráðsins.

Háskólaráð tekur endanlega afstöðu til innritunarbeiðna nemenda sem ekki hafa lokið stúdentsprófi og annast staðfestingu á almanaki, námskrám og kennsluskrám háskólans.

Háskólaráð setur reglur um framhaldsnám á meistarastigi og doktorsstigi við háskólann.

Færa skal til bókar ákvarðanir háskólaráðs.

Rektor.

4. gr.

Rektor er æðsti yfirmaður stjórnsýslu háskólans.

Rektor skal vinna að mörkun heildarstefnu í málefnum skólans og hefur ásamt háskóla­ráði eftirlit með rekstri, kennslu, rannsóknum og þjónustu og annarri starfsemi, til sam­ræmis við þau lög og stjórnvaldsfyrirmæli sem um skólann gilda.

Rektor ræður alla starfsmenn háskólans og skal sjá til þess að til séu starfslýsingar fyrir allt starfsfólk, að svo miklu leyti sem þær koma ekki fram í lögum eða kjarasamningum.

Rektor hefur yfirumsjón með sjóðum skólans og öðrum eignum. Um stjórnir sjóða fer að öðru leyti eftir fyrirmælum í stofnskrám eða samþykktum varðandi þá sérstaklega.

Rektor boðar til funda eftir reglum skólans og hefur umsjón með útgáfu ársskýrslu.

Staðgengill er rektor til aðstoðar við daglega stjórn og gegnir sá starfinu tímabundið í fjarveru eða forföllum hans. Falli rektor frá eða láti af störfum áður en starfstími er liðinn sinnir staðgengill starfi rektors þar til nýr rektor hefur verið skipaður lögum samkvæmt.

Rektor tilnefnir staðgengil sinn úr hópi starfandi deildarforseta skólans og skal sá jafn­framt vera varamaður rektors í háskólaráði í fjarveru hans.

Í fjarveru rektors getur staðgengill rektors farið fram á við forseta háskólaráðs að boðað verði til fundar í háskólaráði.

Skipun rektors.

5. gr.

Um skipun rektors við háskólann fjallar í 7. gr. laga nr. 40/1999 um Háskólann á Akur­eyri.

Við tilnefningu rektors skal háskólaráð hverju sinni skipa þriggja manna nefnd til þess að meta hæfni umsækjenda til að gegna stöðunni.

Háskólaráð tilnefnir tvo menn í nefnd til að meta hæfni umsækjenda og skal annar þeirra vera formaður en menntamálaráðuneytið tilnefnir einn.

Nefndarmenn er koma að mati á umsækjendum um stöðu rektors skulu hafa lokið æðri prófgráðu við háskóla og hafa auk þess öðlast marktæka stjórnunarreynslu á háskóla­stigi.

Hæfni umsækjanda um rektorsembætti skal metin eftir vísinda- og útgáfustörfum, ferli sem háskólakennara, stjórnunarreynslu og öðrum störfum sem á einhvern hátt lúta að háskólastjórn og æðri menntun.

Engum má veita embætti rektors nema meirihluti dómnefndar hafi látið í ljós að við­komandi teljist hæfur til að gegna starfinu.

Ef rektor skólans sækist eftir endurtilnefningu skal hann víkja af fundi háskólaráðs við afgreiðslu málsins, en sæki rektor þá einn um starfið telst hann vera sjálfkjörinn.

Framkvæmdastjórn.

6. gr.

Í framkvæmdastjórn skólans eiga sæti rektor sem er í forsæti, framkvæmdastjóri háskólans og deildarforsetar háskóladeilda.

Framkvæmdastjórn hefur eftirlit með daglegum rekstri skólans og tryggir eftirfylgni ákvarðana háskólaráðs.

Í framkvæmdastjórn er eftir atvikum farið yfir, fjármál, áætlanagerð, uppgjör og teknar ákvarðanir um samstarfssamninga, rætt um framgang þróunarverkefna og nýsköpunar, auk samræmingar verkefna á milli einstakra deilda og háskólaskrifstofu.

Háskólaráð og fulltrúar í framkvæmdastjórn geta vísað málum til framkvæmdastjórnar.

Framkvæmdastjóri.

7. gr.

Rektor skal ráða framkvæmdastjóra fyrir háskólann sem heyrir beint undir rektor.

Framkvæmdastjóri stýrir háskólaskrifstofu og annast fjárreiður skólans, en skal hafa samvinnu við deildarforseta einstakra deilda um skrifstofuhald og fjárreiður deilda.

Framkvæmdastjóri skal undirbúa árlega fjárhagsáætlun og hafa eftirlit með því að rekstur skólans sé til samræmis við gildandi heimildir hverju sinni.

Framkvæmdastjóri annast ráðningar starfsmanna háskólaskrifstofu í umboði rektors.

Nánar er fjallað um stöðu, hlutverk og almenn starfsgengisskilyrði framkvæmdastjóra í sérstakri starfslýsingu fyrir framkvæmdastjóra háskólans.

Háskólaskrifstofa.

8. gr.

Undir háskólaskrifstofu heyrir almenn stjórnsýsla og stoðþjónusta við deildir skólans, sbr. ákvæði í IV. kafla þessara reglna.

Deildir háskólans.

9. gr.

Í háskólanum eru starfræktar eftirtaldar háskóladeildir sem hver um sig annast kennslu og rannsóknir á viðkomandi fræðasviðum:

 

a)

Félagsvísinda- og lagadeild.

 

b)

Heilbrigðisdeild.

 

c)

Kennaradeild.

 

d)

Viðskipta- og raunvísindadeild.

Deildarskipan háskólans skal lögum samkvæmt ákvörðuð af háskólaráði, sbr. 8. gr. laga nr. 40/1999.

Gæðaráð.

10. gr.

Við háskólann skal starfrækt gæðaráð sem ber ábyrgð á framkvæmd gæðakerfis skól­ans.

Í gæðaráði sitja rektor í forsæti, deildarforsetar, framkvæmdastjóri, gæðastjóri skólans, auk eins fulltrúa nemenda sem FSHA tilnefnir og eins fulltrúa sem starfsmenn tilnefna.

Háskólaráð skal setja nánari reglur um hlutverk og skipan gæðaráðs og um gæðastjóra.

Vísindaráð.

11. gr.

Við háskólann skal starfrækt vísindaráð sem skal vera yfirstjórn til ráðgjafar um eflingu rannsókna en háskólaráð setur frekari reglur um hlutverk þess og skipan.

Háskólafundur.

12. gr.

Háskólafundur er samráðsvettvangur fulltrúa yfirstjórnar skólans, háskóladeilda, háskóla­skrifstofu auk fulltrúa nemenda og kennara. Skal fundurinn vera vettvangur fyrir umræðu um fagleg málefni innan skólans sem og varðandi akademíska stefnumótun.

Háskólaráð getur leitað umsagnar háskólafundar um hvaðeina sem varðar starfsemi háskólans og deilda hans en fundurinn telst vera ályktunarbær um þau málefni sem háskólaráð ákveður að vísa sérstaklega til hans.

Á háskólafundi eiga eftirfarandi fulltrúar rétt til setu:

 

a)

Fulltrúar í háskólaráði, þ.m.t. rektor, forsetar háskóladeilda, staðgenglar deildar­forseta, framkvæmdastjóri, gæðastjóri og forstöðumenn sviða háskóla­skrifstofu.

 

b)

Úr hópi fastra kennara tilnefna deildir hver um sig einn fulltrúa, félag pró­fessora tilnefnir einn, félag háskólakennara tilnefnir einn, starfsmenn háskóla­skrifstofu tilnefna einn og skulu þeir allir tilnefndir á tveggja ára fresti auk varamanna.

 

c)

Af hálfu nemenda formaður og varaformaður FSHA eða staðgenglar þeirra.

Háskólafund skal halda a.m.k. einu sinni á ári en rektor stýrir fundi og boðar til hans.

Niðurstöður ályktana af hálfu háskólafundar skulu kynntar á vettvangi háskólans.

Háskólaráð setur nánari reglur um framkvæmd háskólafundar.

Siðanefnd.

13. gr.

Siðanefnd skólans skal vera yfirstjórn til ráðgjafar um gerð og túlkun siðareglna.

Háskólaráð skal setja háskólanum siðareglur m.t.t. áskilnaðar laga þar um, sbr. 2. gr. laga nr. 63/2006.

Um skipan siðanefndar fjallar í reglum skólans, sbr. reglur um viðurlög við ritstuldi frá 29. maí 2006, en háskólaráð setur henni frekari reglur.

III. KAFLI

Háskóladeildir og kennarar.

Yfirstjórn deilda.

14. gr.

Með yfirstjórn deilda háskólans fara deildarfundur og deildarforseti í hverri deild, en deildarráð ef deildarfundur viðkomandi deildar tekur ákvörðun um að skipa það.

Deildarforsetar.

15. gr.

Deildarforseti hefur í umboði deildarfundar yfirumsjón með starfsemi og rekstri viðkomandi deildar og vinnur að stefnumörkun í málefnum hennar.

Á meðal helstu verkefna deildarforseta eru:

 

a)

Yfirumsjón með kennslu og námskrárgerð í viðkomandi deild.

 

b)

Umsjón með málum sem snerta rannsóknir deildar.

 

c)

Annast fundarboð til fulltrúa á deildarfundum og fundarstjórnun á deildarfundi.

 

d)

Gerð fjárhagsáætlana fyrir deildina í samvinnu við framkvæmdastjóra skólans.

 

e)

Frumkvæði að samstarfi við aðrar háskóladeildir.

 

f)

Frumkvæði að því að deildarfundur setji reglur um innri málefni deildar.

 

g)

Ábyrgð á framkvæmd gæðastjórnunar í starfsemi deildar.

Deildarforseti skal jafnframt vera formaður deildarráðs ef deildarfundur tekur ákvörðun um skipun slíks ráðs.

Ráðning deildarforseta.

16. gr.

Rektor ræður deildarforseta til þriggja ára að fenginni umsögn viðkomandi deildar og að höfðu samráði við háskólaráð og skal staðan auglýst laus til umsóknar.

Umsækjendur um stöðu deildarforseta skulu uppfylla almenn hæfisskilyrði sem háskóla­kennarar, sbr. VI. kafla laga nr. 63/2006, og það á vettvangi þeirra fræða sem annað­hvort eru kennd í viðkomandi háskóladeild eða tengjast mjög náið helstu viðfangs­efnum hennar.

Dómnefnd skal meta hæfni umsækjenda um stöðu deildarforseta með sama hætti og hæfni umsækjenda um stöðu háskólakennara er metið samkvæmt 3. gr. laga nr. 40/1999 um Háskólann á Akureyri.

Ef sitjandi deildarforseti er á meðal umsækjenda um stöðu deildarforseta skal hann víkja af deildarfundi þegar umsögn er veitt um umsækjendur en staðgengill stýrir fundi.

Deildarfundur kýs staðgengil deildarforseta til þriggja ára í senn og gegnir sá starfi deildarforseta þegar um tímabundna fjarveru eða forföll deildarforseta er að ræða og jafnframt þegar deildarforseti telst vera vanhæfur til að koma að meðferð mála í deild.

Deildarfundir.

17. gr.

Deildarfundir fara með æðsta ákvörðunarvald innan hverrar deildar háskólans.

Deildarfundur fjallar um meginatriði í starfsemi viðkomandi deildar og ber ásamt með deildarforseta ábyrgð á að starfsemi deildar sé til samræmis við lög og reglur.

Á meðal helstu verkefna sem eiga undir deildarfund eru:

 

a)

Aðkoma að mótun stefnu varðandi nám og rannsóknir í deild.

 

b)

Að skera úr málum sem varða skipulag kennslu í deild.

 

c)

Umfjöllun um árlega fjárhagsáætlun deildar.

 

d)

Umfjöllun um málefni einstakra nemenda deildar.

 

e)

Tillögur til háskólaráðs um stofnun og niðurlagningu skora, sviða eða náms­brauta.

 

f)

Að setja deildinni frekari reglur og skipulag eftir því sem við á um innri málefni.

 

g)

Að sinna öðrum verkefnum sem deild er falið að sinna af háskólaráði eða rektor.

Á deildarfundum eiga eftirtaldir fulltrúar rétt til setu og til að fara með atkvæðisrétt:

 

a)

Deildarforseti, prófessorar, dósentar, lektorar og aðjúnktar - óháð starfs­hlutfalli.

 

b)

Starfsmenn samstarfsstofnana viðkomandi deildar sem teljast hafa stjórnunar-, rannsókna- eða kennsluskyldu við skólann og verkefnisstjórar og sérfræðingar ráðnir til starfa í viðkomandi deild.

 

c)

Tveir fulltrúar stundakennara tilnefndir af stundakennurum til eins árs í senn.

 

d)

Tveir fulltrúar nemenda tilnefndir af deildarfélögum þeirra til eins árs í senn.

 

e)

Háskóladeild getur sett nánari reglur um tilhögun á vali fulltrúa skv. liðum c og d.

 

f)

Rektor, framkvæmdastjóra og gæðastjóra skólans er heimilt að sitja deildar­fundi og hafa þar málfrelsi og tillögurétt, en fara þar ekki með atkvæðis­rétt.

Deildarfundir skulu að jafnaði haldnir mánaðarlega í deildum þar sem ekki er starfandi deildarráð, en ella eigi sjaldnar en tvisvar á misseri og skal deildarforseti gera áætlun um deildarfundi skólaársins og kynna hana fyrir þeim sem eiga rétt til setu á deildarfundum.

Skylt er að boða til deildarfundar ef rektor eða þriðjungur fulltrúa sem eiga rétt til setu á deildarfundi æskja þess.

Deildarforseti boðar fulltrúa með rétt til setu á deildarfundi til deildarfundar bréflega með þriggja daga fyrirvara ef unnt er, en fundarefni á dagskrá skal greina í fundarboði.

Deildarfundur er ályktunarfær ef fundinn sækir meira en helmingur atkvæðisbærra fulltrúa. Afl meirihluta atkvæða ræður úrslitum mála. Nú eru atkvæði jöfn og sker þá atkvæði deildarforseta úr. Ákvarðanir deildarfunda skulu bókfærðar.

Deildarfundur setur reglur um innra skipulag deildar sem fjalla m.a. um hlutverk skorar-, sviða- eða brautarfunda og kjör og kjörtímabil skorarformanna, sviðs- eða brautarstjóra.

Deildarfundi er heimilt að setja á fót námsnefndir sem fjalla um og gera tillögur um námskrá, námsskipan og námsgreinar fyrir tiltekin fræðasvið í deild. Sé ekki stofnað til námsnefnda skulu skora- eða kennarafundir námsbrauta og sviða fara með það hlutverk.

Háskólaráð getur að tillögu deildarfundar veitt heimild til að starfrækja framhaldsnám á meistara- eða doktorsstigi á tilteknum sviðum en deildin gerir tillögu um skipulag þess.

Háskóladeild getur veitt doktorsnafnbót í heiðursskyni að fengnu samþykki a.m.k. ¾ allra atkvæðisbærra fulltrúa á deildarfundi og að fenginni staðfestingu háskólaráðs.

Deildarráð.

18. gr.

Deildarfundur getur tekið ákvörðun um að sérstakt deildarráð skuli fara með tiltekin málefni viðkomandi háskóladeildar.

Deildarfundur setur reglur um skipan deildarráðs en þar skulu a.m.k. eiga sæti auk deildarforseta og staðgengils hans skorarformenn, brautarstjórar og sviðsstjórar auk eins fulltrúa af hálfu nemenda sem skal tilnefndur af viðkomandi deildarélögum þeirra.

Þar sem deildarráð starfar skal það fjalla um erindi sem varða mál einstakra nemenda.

Deildarráð tekur ákvarðanir með sama hætti og deildarfundur en ákvörðunum þess er hægt að skjóta til deildarfundar innan þriggja vikna frá því að hún var kynnt viðkomandi.

Deildarfundur getur sett nánari reglur um vald og verksvið deildarráðs.

Kennarar háskólans.

19. gr.

Fastir kennarar háskólans eru prófessorar, dósentar og lektorar og þeir einir teljast lögum samkvæmt hafa kennslu og rannsóknir að aðalstarfi við skólann, sbr. 2. gr. laga nr. 40/1999.

Einnig starfa aðjúnktar, verkefnisstjórar, sérfræðingar og stundakennarar við skólann.

Veiting kennaraembætta.

20. gr.

Þá eina má ráða sem fasta kennara sem lokið hafa fullnaðarprófi frá háskóla eða annarri sambærilegri stofnun í aðalgrein eða tengdri grein þeirri sem þeir eiga að kenna.

Umsækjendur um stöður prófessora, dósenta og lektora skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um vísinda- eða fræðastörf sín, ritsmíðar, rannsóknir, kennslustörf, stjórnunarstörf, námsferil og önnur störf.

Um skipun dómnefndar og mat á umsóknum um stöður prófessora, dósenta og lektora fjallar í 3. gr. laga nr. 40/1999 og í frekari reglum sem háskólaráð setur á grundvelli þeirra.

Sé auglýst staða prófessors, dósents eða lektors og fleiri en einn umsækjandi fá hæfnisdóm skal rektor leita umsagnar viðkomandi deildar/deilda áður en ráðið er.

Heimilt er að flytja kennara úr lektorsstöðu í dósentsstöðu og úr dósentsstöðu í pró­fessorsstöðu samkvæmt reglum um framgang sem háskólaráð setur. Fallist deildar­forseti á slíkan framgang ber háskólaráði að sjá til þess að umsóknir fái þá máls­meðferð sem kveðið er á um í 3. gr. laga nr. laga 40/1999 um Háskólann á Akureyri.

Rektor ákvarðar í samráði við deildarforseta hvernig starfsskyldur einstakra háskóla­kennara skiptast á milli kennslu og annarra starfsþátta innan marka gildandi kjara­samninga og að teknu tilliti til laga og reglna um starfsskyldur og réttindi kennara.

Rannsóknaleyfi.

21. gr.

Háskólaráði er heimilt að veita kennurum og öðrum fastráðnum starfsmönnum háskólans rannsóknaleyfi í allt að eitt ár á föstum launum, enda liggi fyrir fullnægjandi greinargerð um hvernig umsækjandi hyggst verja leyfinu til að auka þekkingu sína eða sinna sérstökum rannsóknaverkefnum á meðan á rannsóknaleyfi stendur.

Eftir því sem fjárlög heimila og kjarasamningar gera ráð fyrir getur háskólaráð veitt einstaklingi sem rannsóknaleyfi hlýtur styrk til að standa straum af nauðsynlegum ferða- og dvalarkostnaði sem kemur til í sambandi við rannsóknaleyfið.

Umsækjendur sem hyggjast nýta rannsóknaleyfi til að stunda doktorsnám skulu alla jafnan njóta forgangs við veitingu rannsóknaleyfa að öðrum skilyrðum uppfylltum.

Háskólaráð skal setja nánari reglur um rannsóknaleyfi og styrkveitingar.

IV. KAFLI

Háskólaskrifstofa.

Svið háskólaskrifstofu.

22. gr.

Háskólaskrifstofa og starfsmenn hennar annast almenna stjórnsýslu og stoðþjónustu fyrir háskólann og deildir hans, en skrifstofan skiptist upp í eftirtalin svið:

 

a)

Fjármála-, starfsmanna- og rekstrarsvið.

 

b)

Kennslusvið.

 

c)

Markaðs- og kynningarsvið.

 

d)

Upplýsingasvið.

 

e)

RHA – Rannsókna- og þróunarmiðstöð.

Framkvæmdastjóri sem starfar í umboði rektors stýrir háskólaskrifstofu en undir framkvæmdastjóra heyra forstöðumenn hver á sínu sviði auk annars starfsfólks.

Framkvæmdastjóri skal funda reglulega með forstöðumönnum sviða háskólaskrifstofu.

Fjármála-, starfsmanna- og rekstrarsvið.

23. gr.

Fjármála-, starfsmanna- og rekstrarsvið sinnir bókhaldi og launamálum, því sem lýtur að fasteignum skólans eða umsýslu vegna fasteigna sem tengjast skólastarfinu, auk reksturs á tölvukerfi og þjónustuveri háskólans.

Kennslusvið.

24. gr.

Kennslusvið sinnir neðangreindum rekstrarþáttum og þjónustu:

 

a)

Almennri afgreiðslu og nemendaskrá.

 

b)

Skrifstofuhaldi fyrir deildir háskólans.

 

c)

Prófstjórn.

 

d)

Námsráðgjöf.

 

e)

Alþjóðasamskiptum.

 

f)

Fjarkennslu.

 

g)

Þróun upplýsingakerfa háskólans.

Markaðs- og kynningarsvið.

25. gr.

Markaðs- og kynningarsvið sér einkum um markaðsmál og kynningarstarf skólans en kemur einnig að verkefnum í tengslum við almannatengsl og ráðstefnuhald. Markaðs- og kynningarsvið hefur enn fremur yfirumsjón með vef háskólans.

Upplýsingasvið.

26. gr.

Upplýsingasvið annast m.a. rekstur bóksafns skólans en um er að ræða rannsókna- og sérfræðibókasafn, sbr. ákvæði laga sem gilda um bókasafnið, sbr. 15. gr. laga nr. 40/1999.

Upplýsingasvið sinnir auk bókasafnsins eftirtöldum rekstrarþáttum og þjónustu:

 

a)

Sérsöfnum á vegum háskólans, þ.m.t. listasafni og steinasafni skólans.

 

b)

Útgáfumálum háskólans.

 

c)

Rafrænni skjalastjórnun.

RHA - Rannsókna- og þróunarmiðstöð.

27. gr.

Innan vébanda háskólans er starfrækt RHA – Rannsókna- og þróunarmiðstöð.

RHA sinnir stjórnsýslu, þjónustu og ráðgjöf í tengslum við rannsóknir í skólanum með það að markmiði að efla rannsóknastarfsemi skólans og styrkja tengsl við atvinnulífið.

RHA er meðal annars heimilt að stunda þjónusturannsóknir en með því er átt við rannsóknir sem unnar eru fyrir eða í tengslum við aðila utan háskólans gegn endurgjaldi.

RHA heyrir undir háskólaskrifstofu en háskólaráð setur nánari reglur um starfsemina.

Heimilt er að ráða sérfræðinga til starfa við RHA auk þess sem kennarar skólans geta fullnægt rannsóknaskyldu sinni að nokkru eða öllu leyti með störfum í þágu RHA.

Háskólaráð skal setja reglur um skipulag og ráðstöfun á þeim rannsóknasjóðum sem háskólinn hefur til umráða.

V. KAFLI

Nemendur, kennsla og námsmat.

Nám og kennsla í deildum háskólans.

28. gr.

Deildir háskólans bera akademíska ábyrgð á kennslu, kennslufyrirkomulagi og á veitingu námsgráða við skólann.

Kennsla skal fara fram í námskeiðum sem eru metin til eininga, en fullt nám á námsári skal almennt samsvara 60 námseiningum (ECTS) og endurspeglar þá alla námsvinnu nemenda.

Deildum er heimilt að setja nemendum skilyrði um að ljúka beri námsefni 1. og 2. árs áður en nám er hafið á 3. ári í skólanum og skal þá tilkynnt um slíkt fyrirkomulag.

Hámarkstími í tilteknu námi við skólann skal vera 50% umfram áætlaðan námstíma, en deildarfundur getur þó veitt undanþágur frá þeim áskilnaði í sérstökum tilvikum.

Deildir skólans geta sett frekari reglur um námsframvindu í samvinnu við kennslusvið.

Háskólaárið.

29. gr.

Háskólaárið telst vera frá 15. ágúst til jafnlengdar næsta árs.

Kennsluárið skiptist í tvö kennslumisseri, þ.e. haustmisseri og vormisseri og skal haustmisseri lokið í síðasta lagi 21. desember og vormisseri hefjast í fyrsta lagi 3. janúar.

Almennt skal kennsla ekki fara fram miðvikudag fyrir skírdag og þriðjudag eftir annan í páskum né 1. desember, á helgidögum þjóðkirkjunnar eða á öðrum lögboðnum frí­dögum.

Háskólaráð getur ákveðið að fella niður kennslu á öðrum dögum en hér eru tilgreindir.

Háskólaráð staðfestir með nauðsynlegum fyrirvara og ekki síðar en í febrúar ár hvert almanak háskólans fyrir komandi skólaár.

Náms- og kennsluskrá.

30. gr.

Háskólaráð staðfestir með nauðsynlegum fyrirvara og ekki síðar en í febrúar ár hvert námskrá fyrir verðandi nýnema sem gildir fyrir nemendur sem innritast það námsár og stunda nám með eðlilegri námsframvindu.

Kennslusvið annast frágang á námskrá að fenginni staðfestingu deilda og skulu í henni vera almennar upplýsingar um námsframboð og uppbyggingu námsleiða innan háskólans á hverjum tíma. Í námskrá eru nöfn og númer allra námskeiða, stutt lýsing á efni hvers námskeiðs fyrir sig ásamt skilgreiningum á þeirri þekkingu og hæfni sem nemendum er ætlað að búa yfir við lok námskeiðs og jafnframt eftir atvikum kröfur um undanfara og meginþættir námsmats.

Í kennsluskrá skal birt yfirlit yfir þau námskeið sem kennd eru á viðkomandi skólaári samkvæmt gildandi námskrám. Auk upplýsinga sem fram koma um einstök námskeið í námskrám skal kennsluskrá jafnframt tilgreina nánari upplýsingar s.s. um umsjónarkennara, námsmat og lesefni í viðkomandi námskeiði sem og á hvaða tungumáli það er kennt.

Innritun í háskólann.

31. gr.

Hver sá er lokið hefur stúdentsprófi frá íslenskum framhaldsskóla eða jafngildu prófi getur sótt um að skrá sig til náms við skólann gegn því að greiða skrásetningargjald.

Háskólaráði er þó lögum samkvæmt, sbr. 19. gr. laga nr. 63/2006, heimilt að leyfa innritun annarra nemenda sem búa yfir jafngildri reynslu og þekkingu og að því gefnu að af hálfu viðkomandi deildar sé talið að um sé að ræða fullnægjandi undirbúning nemanda til þess náms sem um ræðir.

Inntaka nemenda er endanlega á valdsviði háskólaráðs og getur ráðið einnig takmarkað fjölda þeirra sem hefja nám við deildir skólans eftir frekari reglum sem það kann að setja.

Háskólaráð skal að fengnum tillögum deilda staðfesta reglur um skráningu stúdenta í einstakar deildir þar sem kveðið er nánar á um inntökuskilyrði í viðkomandi deild, sbr. 4. gr. laga nr. 40/1999.

Skráning nýnema fer að jafnaði fram í maí, en skráning annarra nema fer að jafnaði fram í apríl ár hvert. Skráningu nema sem æskja flutnings frá erlendum háskólum skal lokið fyrir 1. maí.

Beiðni um skráningu nýnema skal fylgja ljósrit eða staðfest afrit stúdentsprófskírteinis og önnur skilríki sem nánar kann að verða kveðið á um af hálfu viðkomandi deildar.

Ár hvert skal háskólaráð ákveða skrásetningargjald í samræmi við lög um háskólann, sbr. 4. gr. laga nr. 40/1999. Skrásetningargjald nær til heils skólaárs en þeir nemendur sem fá heimild til þess að hefja nám á vormisseri greiða helming skrásetningargjaldsins.

Námskeið á vegum háskólans eru ætluð fyrir nemendur skráða í skólann. Þau eru þó öðrum opin eftir nánari reglum sem háskólaráð setur og með samþykki kennara.

Nemendur hafa ekki rétt til þess að gangast undir próf nema þeir uppfylli skilyrði um inntöku í skólann, hafi greitt skrásetningargjald og séu skráðir í viðkomandi námskeið.

Námsmat og verknám.

32. gr.

Um fyrirkomulag í tengslum við próf eða annað námsmat í skólanum eru fyrirmæli í námsmatsreglum fyrir Háskólann á Akureyri sem háskólaráð setur, sbr. prófareglur fyrir Háskólann á Akureyri frá 27. september 2004.

Háskóladeildum er heimilt að setja reglur um skyldu nemenda til þátttöku í verklegum æfingum, verklegu námi og vettvangsþjálfun.

Réttindi og skyldur nemenda.

33. gr.

Rektor getur veitt nemanda áminningu eða vikið honum úr skóla tímabundið eða að fullu gerist nemandinn brotlegur við reglur skólans, en um skilyrði, málsmeðferð og um málskotsrétt nemenda þar að lútandi fjallar í lögum um háskólann, sbr. 11. gr. laga nr. 40/1999.

Háskólaráð skal setja frekari reglur um réttindi og skyldur nemenda háskólans þar sem koma jafnframt fram málsmeðferðarúrræði og kæruleiðir fyrir nemendur innan skólans.

VI. KAFLI

Almennt varðandi starfsemi háskólans.

Samvinna innan háskólans.

34. gr.

Deildir skulu hafa náið samstarf og með samnýtingu mannafla, bókasafns, tækja og aðstöðu skal stefnt að fjölbreyttu námsframboði samfara hagkvæmni í rekstri og má í því skyni nýta starfsskyldu starfsfólks deilda í þágu annarra deilda eða skólans almennt.

Samstarf við aðra háskóla og samstarfsstofnanir.

35. gr.

Háskólinn og einstakar deildir hans skulu fyrir sitt leyti hafa samráð og samstarf við aðra skóla á háskólastigi til að nýta sem best tiltæka starfskrafta og gagnakost og stuðla með hagkvæmum hætti að fjölbreyttari menntunarkostum.

Leita ber samkomulags við samstarfsaðila um gagnkvæma viðurkenningu námsþátta auk þess sem skólanum er einnig heimilt að gera samstarfssamninga við aðrar stofnanir, sem tengjast starfssviði skólans, um kennslu, rannsóknir og ráðningu starfsfólks.

Í samstarfssamningum er heimilt að kveða á um að starfsmenn samstarfsstofnana, sem hafa kennsluskyldu við skólann, en gegna rannsóknaskyldu sinni við samstarfsstofnun, eigi rétt á, eða sé skylt, að dómnefnd meti hæfi þeirra til að gegna þar lektors-, dósents- eða prófessorsstöðu.

Sá er hlýtur hæfnisdóm skv. framangreindri málsgrein skal njóta sambærilegra réttinda og gegna sambærilegum skyldum og lektorar, dósentar eða prófessorar eftir því sem við á þótt ráðning sé við aðra stofnun, enda sé slíkt í samræmi við lög, reglur og kjarasamninga er gilda fyrir samstarfsstofnunina.

Háskólaráð getur sett framgangsreglur fyrir starfsmenn samstarfsstofnana sem hafa kennsluskyldu við skólann og í samræmi við framgangsreglur fyrir kennara við skólann.

Tengsl við almenning og endurmenntun.

36. gr.

Háskólinn og þar með taldar deildir hans og stofnanir skulu leitast við að miðla fræðslu til almennings og veita þjóðfélaginu þjónustu í krafti þekkingar sinnar.

Háskólinn sinnir sí- og endurmenntun á vettvangi fræða sem kennd eru við deildir skólans og skulu kennarar skólans m.a. hvattir til símenntunar og rannsóknarþjálfunar.

Gæðaeftirlit.

37. gr.

Í háskólanum skal fara fram reglulegt sjálfsmat á innra starfi auk ytra mats með stöðugar umbætur í huga til samræmis við áskilnað laga þar um, sbr. IV. kafla laga nr. 63/2006 og reglur nr. 331/1999.

Gæðastjóri hefur með höndum daglega umsjón með gæðakerfi háskólans en rektor ber þó endanlega ábyrgð á því að höfðu samráði við gæðaráð.

Háskólaráð skal setja frekari reglur um gæðastjórnun og gæðaráð.

Ársfundur háskólans.

38. gr.

Ár hvert skal rektor boða til ársfundar með starfsmönnum um málefni háskólans og skal rektor tilkynna um fundinn með a.m.k. viku fyrirvara.

Ársskýrsla háskólans.

39. gr.

Rektor hefur umsjón með að ársskýrsla háskólans komi út fyrir hvert almanaksár. Í ársskýrslu skal fjallað um starfsemi skólans, stofnanir hans og sjóði, ráðstöfun fjármuna skólans og málefni nemenda almennt.

VII. KAFLI

Gildistaka o.fl.

Gildistaka - endurskoðun.

40. gr.

Reglur þessar öðlast þegar gildi við staðfestingu af hálfu háskólaráðs, en samtímis falla úr gildi reglur nr. 888/1999 fyrir Háskólann á Akureyri.

Háskólaráð endurskoðar þessar reglur eftir þörfum og sæta þær breytingum af hálfu ráðsins með venjulegum hætti.

Háskólanum á Akureyri, 30. apríl 2007.

Guðmundur Heiðar Frímannsson, staðgengill rektors.

Ingi Rúnar Eðvarðsson,
varaforseti háskólaráðs.

B deild - Útgáfud.: 29. maí 2007