1. gr. 2. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Þrátt fyrir ákvæði 1. gr. skal línuívilnun í þorski á hverju fiskveiðiári takmarkast við 3.375 lestir, 1.300 lestir af ýsu og 700 lestir af steinbít, miðað við óslægðan fisk, sem skiptast þannig innan fiskveiðiársins: | Tímabil | Þorskur | Ýsa | Steinbítur | 1. 2. 3. 4. | September – nóvember Desember – febrúar Mars – maí Júní – ágúst | 1.080 1.280 770 245 | 473 416 240 171 | 33 105 425 138 |
2. gr. Reglugerð þessi er sett með heimild í 11. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 17. nóvember 2014. | F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, | Jóhann Guðmundsson. |
Baldur P. Erlingsson. |