Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1208/2007

Nr. 1208/2007 3. desember 2007
REGLUR
um vísindaráð Háskólans á Akureyri.

Hlutverk vísindaráðs.

1. gr.

Vísindaráð er fastanefnd háskólaráðs. Það er háskólaráði og yfirstjórn til ráðgjafar um eflingu vísindalegra rannsókna við Háskólann á Akureyri. Vísindaráð getur efnt til ráðstefna eða með öðrum hætti vakið umræðu um þau svið vísinda sem stunduð eru við Háskólann á Akureyri. Vísindaráð hefur ekki ákvörðunarvald um málefni rannsókna.

Skipan vísindaráðs.

2. gr.

Í vísindaráði sitja fulltrúar deilda háskólans. Þeir eru valdir til þriggja ára úr hópi lektora, dósenta og prófessora hverrar deildar. Hver deild tilnefnir einn fulltrúa og annan til vara. Við tilnefningu skal þess gætt að fulltrúarnir endurspegli styrk deildanna í rannsóknum. Í ráðinu situr einnig fulltrúi nemenda, valinn til eins árs í senn af Félagi stúdenta við Háskólann á Akureyri, ásamt varamanni. Rektor skipar tvo fulltrúa og tvo til vara. Við val fulltrúa rektors skal þess gætt að tryggja sem mesta faglega breidd ráðsins og styrk fyrir háskólann út á við. Rektor skipar formann ráðsins.

Starfshættir og viðfangsefni vísindaráðs.

3. gr.

a)

Vísindaráð er rektor, háskólaráði, háskólafundi og yfirstjórn til ráðgjafar um málefni vísinda við Háskólann á Akureyri.

b)

Vísindaráð beitir sér fyrir mótun og endurskoðun stefnu um vísindi við Háskólann á Akureyri.

c)

Vísindaráð starfar með gæðaráði að því að móta viðmið og kvarða sem notaðir eru til að meta vísindalega starfsemi við Háskólann á Akureyri.

d)

Vísindaráð hefur forgöngu um að skapa bætt umhverfi til rannsókna fyrir kennara háskólans.

e)

Starfsmaður Rannsókna- og þróunarmiðstöðvar HA situr fundi vísindaráðs, er ritari ráðsins og annast dagleg störf fyrir það.

f)

Háskólaráð setur vísindaráði erindisbréf.

Almenn ákvæði.

4. gr.

Reglur þessar eru settar af háskólaráði samkvæmt 11. gr. reglna fyrir Háskólann á Akureyri nr. 466/2007 og öðlast þegar gildi.

Háskólanum á Akureyri, 3. desember 2007.

Þorsteinn Gunnarsson rektor.

Sólveig Ása Árnadóttir,
varaforseti háskólaráðs.

B deild - Útgáfud.: 20. desember 2007