Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1072/2010

Nr. 1072/2010 28. desember 2010
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 686/2005, um tímabundna endurgreiðslu 2/3 hluta virðisaukaskatts vegna kaupa eða leigu hópferðabifreiða.

1. gr.

1. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Eftir ákvæðum reglugerðar þessarar geta þeir sem leyfi hafa til fólksflutninga í atvinnuskyni samkvæmt lögum nr. 73/2001, um fólksflutninga og farmflutninga á landi, fengið endurgreidda 2/3 hluta þess virðisaukaskatts sem greiddur er vegna kaupa eða leigu hópferðabifreiða og almenningsvagna á tímabilinu frá 1. janúar 2011 til og með 31. desember 2011.

2. gr.

2. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Endurgreiðsluheimild skv. 1. gr. er bundin við ökutæki sem nýskráð eru á tímabilinu 1. janúar 2011 til og með 31. desember 2011. Með hópferðabifreiðum er átt við ökutæki sem aðallega eru ætluð til fólksflutninga og eru skráð fyrir 18 manns eða fleiri að meðtöldum ökumanni og búin aflvélum samkvæmt EURO 5 staðli ESB.

3. gr.

Í stað „EUROIII“ í 2. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar kemur: EURO 5.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í ákvæði til bráðabirgða, X, við lög nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Fjármálaráðuneytinu, 28. desember 2010.

F. h. r.

Maríanna Jónasdóttir.

Sóley Ragnarsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 30. desember 2010