1. gr. Fjöldi þeirra nemenda sem öðlast rétt til náms á vormisseri 1. námsárs í hjúkrunarfræði á vormisseri 2016 við heilbrigðisvísindasvið miðast við grunntöluna 50 nemendur. 2. gr. Ákvörðun þessi, tekin af háskólaráði, skv. lögum nr. 85/2008 með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 397/2014 um fjöldatakmörkun í hjúkrunarfræði við heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri. Háskólanum á Akureyri, 8. apríl 2015. Eyjólfur Guðmundsson rektor. |