Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 190/2006

Nr. 190/2006 28. febrúar 2006

GJALDSKRÁ
Kópavogshafnar.

I. KAFLI.

Almenn ákvæði.

1. gr.

Gjaldskrá þessi fyrir Kópavogshöfn er sett skv. heimild í 17. gr. hafnalaga nr. 61/2003, sbr. bráðabirgðaákvæði nr. 1. Gjaldskráin er við það miðuð að Kópavogshöfn geti haft nægar tekjur til þess að standa undir rekstri hafnar sbr. 5. tölulið 3. gr. hafnalaga.

Um gjaldtöku tengda stærð skipa.

2. gr.

Við ákvörðun gjalda, sem taka mið af stærð skipa, skal miðað við brúttótonnatölu skipa samkvæmt alþjóðlegu mælingarbréfi, sem gefið er út í samræmi við alþjóðasamþykktina um mælingu skipa frá 1969.

3. gr.

Af öllum skipum skal greiða tilheyrandi gjöld til hafnarsjóðs ef þau koma inn fyrir takmörk hafnarinnar og njóta þjónustu hennar.

Lestargjöld

4. gr.

Af öllum skipum skal greiða lestagjald, kr. 8,16 á mælieiningu skv. 2. gr. en þó ekki oftar en tvisvar í mánuði.

Bryggjugjöld

5. gr.

Af öllum skipum sem leggjast við bryggju eða hafnarbakka skal greiða samkvæmt eftirfarandi:

Skip minni en 15.000 bt kr. 3,75 á mælieiningu fyrir hverja 24 tíma, sem skip liggur bundið og skip stærri en 15.000 bt kr. 3,75 á mælieiningu fyrir hverja 24 tíma, sem skip liggur bundið. Heimilt er að taka lesta- og bryggjugjald af fiskiskipum og minni bátum, sem mánaðargjald, kr. 60,00 á mælieiningu, en þó aldrei lægra en kr. 6.500 á mánuði. Bátar minni en 20 bt greiði þó aldrei lægra en kr. 3.850 á mánuði.

Smábátagjöld við Bása eru:

kr.

Ársleiga:

75.000

Mánaðarleiga:

7.500

Smábátar, almenningur, lágmarksgjald:

4.000

Vörugjöld.

6. gr.

Vörugjald skal greiða af öllum vörum sem fluttar eru af skipsfjöl í land eða úr landi á skipsfjöl, eða úr einu skipi í annað, innan takmarka hafnarinnar, þó með þeim undantekningum er síðar getur.

7. gr.

Fyrir vörur sem samkvæmt farmskrá skips eru ákveðnar til annarrar hafnar, innlendrar eða erlendrar, en eru látnar í land um stundarsakir, skal aðeins greitt vörugjald þegar vörurnar eru fluttar í land. Undanþegnar þessu gjaldi eru vörur sem látnar eru í land um stundarsakir vegna skemmda á skipi.

8. gr.

Af vörum, sem fluttar eru á skip og fara eiga til annarra hafna innanlands greiðist hálft vörugjald.

Af vörum sem koma frá útlöndum og fara eiga áfram til útlanda er heimilt að innheimta fullt vörugjald þegar vörurnar eru fluttar í land.

9. gr.

Þessar vörur eru algjörlega undanþegnar vörugjaldi:

a) Umbúðir sem endursendar eru.
b) Olía, vistir og aðrar nauðsynjar skipa til eigin notkunar.
c) Almennar póstsendingar og farangur ferðamanna.
d) Úrgangur sem fluttur er til eyðingar.

10. gr.

Vörugjald reiknast eftir þyngd eða verðmæti, með umbúðum og af hverri sendingu sérstaklega. Fara skal eftir farmskrá skipa við útreikning vörugjalds. Skipstjóri eða afgreiðslumaður skips skal láta höfninni í té afrit af farmskrá. Sé engri farmskrá til að dreifa skal skipstjóri gefa drengskaparvottorð um vörumagn sem fermt hefur verið eða affermt úr skipi hans. Þyki hafnarstjóra ástæða til getur hann hvenær sem er látið ákveða vörumagnið á þann hátt sem hann telur hentugast. Reynist vörumagnið vera meira en upp er gefið greiðir farmeigandi kostnaðinn. Séu fleiri en ein vörutegund í sendingu ósundurliðað skal reikna vörugjaldið eftir þeirri tegund sem hæst gjald skal greiða af.

11. gr.

Vörur skal flokka til vörugjalds eftir því sem vörugjaldskrá tiltekur og gjaldið greiðist eins og þar segir:

Vörugjaldskrá.

1. fl.:

Gjald kr. 152 fyrir hvert tonn: Kol, laust korn, salt, vikur, kísilgúr, þörungamjöl, sement, áburður og úrgangur sem fluttur er til endurvinnslu.

2. fl.:

Gjald kr. 185 fyrir hvert tonn: Bensín, brennsluolíur, lýsi og fiskimjöl.

3. fl.:

Gjald kr. 317 fyrir hvert tonn: Þungavarningur, svo sem sekkjavörur, óunnið járn og stál, veiðarfæri, smurningsolíur, sjávarafurðir, landbúnaðarafurðir, hráefni til iðnaðar og byggingaframkvæmda. Pökkuð og niðursoðin matvæli, óáfengar drykkjarvörur og ávextir.

4. fl.:

Gjald kr. 869 fyrir hvert tonn: Aðrar vörur, sem ekki eru tilgreindar í 1., 2. og 3. fl. Af flutningi vinnutækja innanlands skal veita allt að 50% afslátt. Vörugjald greiðist ekki af bifreiðum ferðamanna, enda ferðast eigendur með sama skipi.

5. fl.:

Gjald 1,28%. Sjávarafli lagður á land eða í skip á hafnarsvæðinu til vinnslu eða brottflutnings, þ.m.t. fiskur og seiði úr eldiskvíum. Gjaldið reiknast af heildarverðmæti aflans.

 

Gjald af frystum afla frystitogara og eldisfiski reiknast af helmingi heildarverðmætis. Gjald af saltfiski reiknast miðað við tvöfalda þyngd og gjald af gámafiski reiknast af áætluðu heildarverði.

 

Seljanda aflans ber að afhenda hafnarstjóra skýrslu um seldan afla um leið og sala hefur átt sér stað, t.d. afrit af aflaskýrslu til Fiskistofu. Aflagjaldið fellur í gjalddaga um leið og afla er landað. Seljandi ber skil á greiðslu aflagjalds.

 

Hámarksgjald samkvæmt lið þessum er 4.000 kr. fyrir hvert tonn. Lágmarksgjald í öllum flokkum er kr. 135.

Farþegagjald.

12. gr.

Farþegagjald skal tekið við komu og brottför farþega um Kópavogshöfn. Gjaldtaka hefst 1. maí 2006. Gjald á farþega er kr. 100 fyrir 13 ára og eldri.

Hafnsögugjöld.

13. gr.

Hafnsögugjöld skulu greidd samkvæmt eftirfarandi gjaldskrá:

a)

Fyrir leiðsögu til hafnarinnar, að bólvirki eða lægi kr. 2.100 fyrir hvert skip, auk kr. 3,35 fyrir hvert brúttótonn. Fyrir leiðsögu frá bólvirki eða lægi og úr höfninni greiðist sama gjald.

b)

Fyrir leiðsögu um höfnina skal greiða hálft gjald samkvæmt lið a.

c)

Ef skipstjóri skips hefur hafnsöguréttindi skv. ákvörðun hafnarstjórnar og hafnsögumaður fer ekki um borð, er veittur 25% afsláttur af hafnsögugjaldi.

Þjónusta dráttarbáta.

14. gr.

Tímagjald fyrir aðstoð dráttarbáta miðast við brúttóstærð skips, og er fyrir skip minni en 15.000 bt kr. 6,10 á og fyrir skip stærri en 15.000 bt kr. 6,1. Lágmarksgjald á klst. er kr. 19.000 bt. Lágmarkstími fyrir aðstoð er 1 klst. Fylgi dráttarbátur skipi til öryggis í eða úr höfn, er tekið hálft gjald. Á siglingatíma til og frá stað utan hafnar er tekið hálft gjald fyrir bátinn. Í biðtíma er tekið hálft gjald fyrir bátinn. Við færslu innan hafnar er veittur 10% afsláttur. Fluttur hafnsögumaður: Fast gjald kr. 9.000. Aðrir flutningar: Lægsta tímagjald skv. gjaldskrá. Þegar dráttarbátur flytur hafnsögumann og aðstoðar einnig skipið, fellur gjald fyrir flutning hafnsögumanns niður. Önnur aðstoð er samkvæmt samningi hverju sinni

Festargjöld.

15. gr.

Festargjöld fyrir hverja afgreiðslu (1-2 menn) kr. 7.000. Séu fleiri en tveir menn notaðir við afgreiðslu er gjald fyrir hvern aukamann kr. 7.000.

Vatns- og rafmagnssala.

16. gr.

Vatnsgjöld:

vatn afgreitt frá bryggju:

Kalt vatn kr./m3

195

Heitt vatn kr./m3

350

Lágmarksgjald miðast við 15 tonn.

 

Rafmagnssala:

Rafmagnsnotkun kr./kwst. 8,20
Lágmarksgjald miðast við 400 kwst.
Tengigjald rafmagns er kr. 2.200
Útkall milli kl. 18.00 og 09.00 virka daga, svo og um helgar, greiðist sérstaklega kr. 9.000.

Vigtargjald.

17. gr.

Almenn vigtun kr. 130 á tonn.
Lægsta gjald fyrir einstaka vigtun kr. 800.
Skráningargjald fyrir skráningu í lóðs kr. 75 á tonn.
Útkall milli kl. 18.00 og 09.00 virka daga, svo og um helgar, greiðist sérstaklega
kr. 10.000.

Lóðarleigugjald.

18. gr.

Lóðarleigugjald fyrir gáma- og geymslusvæði með bundnu slitlagi skal vera 75 kr./m2 á mánuði en án slitlags 65 kr./m2 á mánuði. Gjaldtaka hefst 1. júlí 2006.

Bátar á landi greiða kr. 2.000 á mánuði.

Siglingarvernd.

19. gr.

Við komu skipa, sem falla undir ákvæði laga um siglingavernd nr. 50/2004, ber að greiða eftirtalin gjöld til Kópavogshafnar:

Farþegavernd

kr. 150

pr. farþega

Skipavernd

kr. 3,30

pr. brúttótonn á sólarhring

Farmvernd

20% álag á vörugjöld.

 

Gjaldtaka hefst 1. júlí 2006.

Sjósetningaraðstaða.

20. gr.

Gjald kr. 2.000 fyrir báta, sem ekki eru með samning við Kópavogshöfn.

Um innheimtu og greiðslu gjalda.

21. gr.

Hafnarstjóri sér um innheimtu allra gjalda skv. gjaldskrá þessari og skal greiða gjöldin á skrifstofu hafnarinnar. Heimilt er að leita samþykkis skrifstofunnar til notkunar greiðslumiðlunar við uppgjör skulda. Séu gjöldin ekki greidd á réttum gjalddögum er áskilið að reikna dráttarvexti af gjaldfallinni fjárhæð skv. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001.

22. gr.

Skipstjóri og eigandi skips bera ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra sem greiða ber til Kópavogshafnar vegna skipsins. Er skipstjóra skylt við komu til hafnar að gefa hafnarstjóra upplýsingar um skipið í samræmi við ákvæði 5. mgr. 33. gr. reglugerðar nr. 326/2004 um hafnamál og afhenda hafnarstjóra þjóðernis- og skrásetningarskírteini skipsins, ef hafnarstjóri krefst þess vegna ófullnægjandi upplýsinga frá skipstjóra og hefur hafnarsjóður haldsrétt yfir skírteinum uns gjöld eru greidd. Töf og tjón sem af þessu hlýst er einvörðungu á ábyrgð og kostnað greiðanda áfallinna gjalda.

Áfallin gjöld skal greiða áður en skip fer burt úr höfninni og enginn skipstjóri getur vænst þess að fá afgreiðslu fyrir skip sitt hjá sýslumanni eða tollstjóra, nema að hann sanni með vottorði frá hafnarstjóra að hann hafi greitt öll gjöld sín til hafnarinnar.

23. gr.

Vörugjald greiðist af öllum vörum sem eru affermdar, afhentar eða fluttar, á annan hátt sjóleiðis eða landleiðina, inn fyrir mörk hafnarinnar. Vörugjaldið reiknast skipi til skuldar áður en skip hefur siglingu, nema annað sé sérstaklega um samið. Vörugjald er á ábyrgð farmflytjanda og er afhending vöru án greiðslu vörugjalds á hans ábyrgð.

Ef vörur eru fluttar úr einu skipi í annað greiðir sá vörugjaldið sem affermir. Vörugjald af vörum sem koma til hafnarinnar fellur í gjalddaga þegar skipið sem vörurnar flytur er komið í höfnina og vörugjald af vörum sem fluttar eru úr höfninni fellur í gjalddaga þegar vörurnar eru komnar í skip. Skipstjóra og afgreiðslumanni skips er óheimilt að afhenda vörurnar fyrr en gjaldið er greitt.

24. gr.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má ávallt tryggja með aðför að undangengnum dómi. Skipagjöld eru tryggð með lögveði í viðkomandi skipi eða vátryggingarfé. Gengur það veð í tvö ár fyrir samningsveðkröfum sbr. ákvæði 2. mgr. 21. gr. hafnalaga nr. 61/2003. Kópavogshöfn er heimilt að krefjast frekari trygginga fyrir greiðslu áfallinna gjalda ef ástæða þykir til.

25. gr.

Öll gjöld í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts. Kópavogshöfn er skylt að innheimta virðisaukaskatt af öllum gjöldum í gjaldskrá þessari, sbr. 3. tl. 3. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt.

Gildistaka.

26. gr.

Gjaldskrá þessi fyrir Kópavogshöfn er samþykkt af hafnarstjórn þann 27. febrúar 2006 skv. hafnalögum nr. 61/2003 og 37. gr. reglugerðar um hafnamál nr. 326/2004 og staðfest af bæjarstjórn þann 28. febrúar 2006.

Gjaldskráin öðlast gildi þann 10. mars 2006 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Kópavogi, 28. febrúar 2006.

Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri.


B-deild - Útgáfud.: 10. mars 2006

  Til baka