Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1061/2009

Nr. 1061/2009 22. desember 2009
REGLUGERÐ
um eingreiðslu sjúkratrygginga á umtalsverðum tannlækniskostnaði sjúkratryggðra vegna alvarlegra afleiðinga fæðingargalla, sjúkdóma eða slysa.

1. gr.

Sjúkratryggingar Íslands endurgreiða sjúkratryggðum einstaklingum í samræmi við reglugerð þessa, hluta þess tannlækniskostnaðar sem þeir hafa sjálfir orðið að bera á árunum 2008 og 2009. Endurgreiðsla er vegna meðferðar hjá tannlækni vegna alvarlegra afleiðinga fæðingargalla, sjúkdóma eða slysa sem Sjúkratryggingar Íslands eða Tryggingastofnun ríkisins tóku þátt í að greiða á framangreindu tímabili samkvæmt ákvæðum 7. gr., 8. gr., 9. gr., 10. gr. og 12. gr. reglugerðar nr. 576/2005.

2. gr.

Endurgreiðsla samkvæmt reglugerð þessari er takmörkuð við eingreiðslu á 75% eigin kostnaðar umfram kr. 40.000 alls á árunum 2008 og 2009, vegna tannlækninga sem Sjúkratryggingar Íslands eða Tryggingastofnun ríkisins tóku þátt í að greiða samkvæmt heimildum í 7. gr., 8. gr., 9. gr., 10. gr. og 12. gr. reglugerðar nr. 576/2005. Þó skal ekki greiða þann kostnað sem til hefur fallið vegna þess að gjaldskrá tannlæknis er meira en 60% hærri en gjaldskrá nr. 898/2002. Ekki skal greiða út lægri upphæð en kr. 2.000.

3. gr.

Umsóknir um eingreiðslu skulu berast Sjúkratryggingum Íslands eigi síðar en 1. febrúar 2010 en að þeim tíma liðnum fellur niður réttur sjúkratryggðra til eingreiðslu samkvæmt reglugerðinni. Sjúkratryggingar Íslands annast útreikning og endurgreiðslu.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 55. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, öðlast þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 22. desember 2009.

Álfheiður Ingadóttir.

Berglind Ásgeirsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 29. desember 2009