Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
31/2009
|
FORSETI ÍSLANDS gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu: 1. gr.
Við 29. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi: Umhverfisstofnun skal halda námskeið í landvörslu í samræmi við reglugerð umhverfisráðherra, sbr. 2. mgr. Umhverfisstofnun er heimilt að taka gjald fyrir námskeið í landvörslu og próftöku sem þátttakendur greiða. Upphæð gjalds má ekki vera hærri en sá kostnaður sem hlýst af námskeiðshaldi og vinnu vegna próftöku. Ráðherra setur gjaldskrá að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört á Bessastöðum, 1. apríl 2009. Ólafur Ragnar Grímsson. (L. S.) Kolbrún Halldórsdóttir.
|
A-deild - Útgáfud.:
3. apríl 2009
|