1. gr.
Í 2. málslið 1. mgr. 8. gr. fellur orðið „kennslusviðs“ brott og í staðinn kemur orðið: nemendaskrár.
2. gr.
Í 1. málslið 1. mgr. 15. gr. fellur orðið „tveggja“ brott og í staðinn kemur orðið: fjögurra.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. málslið 1. mgr. 21. gr.:
Í staflið b) fellur orðið „kennslusvið“ brott og í staðinn kemur orðið: nemendaskrá.
Í staflið d) fellur heitið: „Upplýsingasvið“ brott og í staðinn kemur heitið: Bókasafn og upplýsingaþjónusta Háskólans á Akureyri.
Í staflið e) fellur heitið „RHA – Rannsókna og þróunarmiðstöð“ brott og í staðinn kemur heitið: RHA – Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri.
Við greinina bætast tveir nýir stafliðir svohljóðandi:
|
f) |
KHA – kennslumiðstöð Háskólans á Akureyri. |
|
g) |
Náms- og starfsráðgjöf. |
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða 23. gr.:
Heitið „Kennslusvið“ fellur brott og í staðinn kemur heitið: Nemendaskrá.
Í staflið b) fellur „Skrifstofuhaldi fyrir fræðasvið háskólans“ brott og í staðinn kemur: Fjarkennslu.
Stafliðir d), e) og f) falla brott.
5. gr.
Eftirfarandi breyting verður á 25. gr.:
Heitið „Upplýsingasvið“ fellur brott og í staðinn kemur heitið: Bókasafn og upplýsingaþjónusta Háskólans á Akureyri.
6. gr.
Eftirfarandi breyting verður á 26. gr.:
Heitið „RHA – Rannsókna- og þróunarmiðstöð“ fellur brott og í staðinn kemur heitið: RHA – Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri.
7. gr.
1. málslið 1. mgr. 24. gr. breytist og verður svohljóðandi:
Markaðs- og kynningarsvið sér einkum um markaðsmál og kynningarstarf skólans ásamt alþjóðasamskiptum, en kemur einnig að verkefnum í tengslum við almannatengsl og ráðstefnuhald.
8. gr.
Við IV. kafla bætist ný grein sem verður 27. gr. svohljóðandi:
KHA – kennslumiðstöð Háskólans á Akureyri.
Markmið og hlutverk KHA – kennslumiðstöðvar HA er að veita faglega aðstoð við kennara við þróun kennsluhátta, hvort sem er í staðar- eða fjarnámi. Kennslumiðstöð veitir almenna ráðgjöf skv. skilgreindu hlutverki sínu, stendur fyrir námskeiðum og sinnir þróunarstarfi með áherslu á upplýsingatækni og kennslufræði. KHA stuðlar að aukinni notkun tölvu- og upplýsingatækni í háskólanum og veitir nemendum og starfsfólki aðstoð og ráðgjöf á því sviði.
9. gr.
Við IV. kafla bætist ný grein sem verður 28. gr. svohljóðandi:
Náms- og starfsráðgjöf.
Náms- og starfsráðgjöf veitir nemendum háskólans margvíslega þjónustu, stuðning og leiðbeiningar á meðan á námi stendur. Auk þess leiðbeinir náms- og starfsráðgjöf væntanlegum nemendum um val á námi og veitir ráðgjöf og upplýsingar um nám í háskólanum og þjónustu innan háskólans sem nemendur og almenningur eiga kost á. Náms- og starfsráðgjafi háskólans hefur umsjón með málefnum fatlaðra nemenda og nemenda með sértæka námsörðugleika.
10. gr.
Í stað 27. gr. hefst kafli V á 29. gr. Númer eftirfarandi greina í reglunum breytast í samræmi við það.
11. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 31. gr.:
Í 1. málslið 2. mgr. fellur orðið „Kennslusvið“ brott og í staðinn kemur: Nemendaskrá.
Í 1. málslið 3. mgr. fellur orðið „skóli“ brott og í staðinn kemur: fræðasvið.
12. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar voru af háskólaráði 23. janúar 2015, eru settar með heimild í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Háskólanum á Akureyri, 18. maí 2015.
Eyjólfur Guðmundsson rektor.
Ögmundur Knútsson, varaforseti háskólaráðs.
|