Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 704/2011

Nr. 704/2011 8. júlí 2011
AUGLÝSING
um stöðvun strandveiða á svæði A, frá Eyja- og Miklaholtshreppi til Súðavíkurhrepps.

1. gr.

Frá og með 13. júlí 2011 eru strandveiðar bannaðar á svæði A, frá Eyja- og Miklaholts­hreppi til Súðavíkurhrepps, sbr. 1. staflið 1. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 361, 4. apríl 2011, um strandveiðar fiskveiðiárið 2010/2011, með síðari breytingum.

2. gr.

Auglýsing þessi er gefin út með stoð í reglugerð nr. 361, 4. apríl 2011, um strandveiðar fiskveiðiárið 2010/2011, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 8. júlí 2011.

F. h. r.

Jóhann Guðmundsson.

Indriði B. Ármannsson.

B deild - Útgáfud.: 8. júlí 2011