Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 596/2014

Nr. 596/2014 20. júní 2014
REGLUR
um gjaldskrá Háskólans á Akureyri vegna þjónustu við nemendur og innheimtu og ráðstöfun skrásetningargjalds.

Samkvæmt 24. gr. laga um opinbera háskóla nr. 85/2008 er Háskólanum á Akureyri (HA) heimilt að afla sér tekna til viðbótar við framlög á fjárlögum. Háskólaráði ber að setja nánari reglur um gjaldtöku og ráðstöfun gjalda og eru þessar reglur gerðar í samræmi við það.

1.

Skrásetningargjald.

 
 

Skrásetningargjald HA

75.000 kr.

 

Leyfi til skrásetningar utan skrásetningartímabils

11.250 kr.

 

Skrásetningargjald, 50% afsl. fyrir öryrkja (gegn staðfestingu á 75% örorkumati)

37.500 kr.

   

a.

Skrásetningartímabil og greiðslur.

 

Greiðslukrafa vegna skrásetningargjalds birtist í netbanka umsækjanda þegar umsókn hefur verið samþykkt. Eindagi skrásetningargjalds er 10. júlí bæði fyrir nýnema og eldri nema og lýkur skrásetningartímabili þann dag. Með greiðslu skrásetningargjalds staðfestir umsækjandi skólavist við Háskólann á Akureyri. Óski viðkomandi eftir að greiða eftir þann tíma reiknast 15% álag á gjaldið og hafi það ekki verið greitt 10. ágúst er litið svo á að viðkomandi hyggist ekki stunda nám við HA á komandi skólaári.

 

Nemandi sem fengið hefur heimild til að hefja nám á vormisseri þarf að greiða hálft skrásetningargjald um miðjan desember, samkvæmt nánari ákvörðun rektors.

b.

Alþjóðlegir nemar sem samþykktir hafa verið sem skiptinemar í gegnum áætlanir Nordplus, Erasmus og North2North, eða frá skólum sem eru með tvíhliða samninga við Háskólann á Akureyri, eru undanþegnir greiðslu skrásetningargjalds við HA hafi þeir greitt skrásetningargjald við sinn heimaskóla.

c.

Samþykktir gestanemendur frá opinberum háskólum á Íslandi eru undanþegnir greiðslu skrásetningargjalds hafi þeir greitt skrásetningargjald við sinn skóla.

d.

Skrásetningargjald er ekki endurgreitt ef nemandi hættir námi.

e.

Ef nemandi getur ekki stundað námið vegna veikinda getur hann fengið 75% gjalds­ins endurgreitt fyrir 30. september og þá gegn framvísun læknisvottorðs þess efnis.

f.

Skrásetningargjaldið er bókfært hjá yfirstjórn háskólans í samræmi við fjárlög. Háskólaráð ráðstafar skrásetningargjaldi á þá kostnaðarliði, sem falla undir gjaldið lögum samkvæmt.

   

2.

Gjaldskrá vegna sölu vöru og þjónustu.

a.

Aðgangur að húsnæði HA:

 
 

Nemendur

0 kr.

 

Gestaaðgangur (réttindi) – nemendur og starfsmenn annarra háskóla (eitt misseri)

1.000 kr.

 

Gestakort

2.000 kr.

 

Nýtt kort í stað glataðs (nemendur og gestir)

2.000 kr.

   

b.

Bókasafn/gagnasmiðja:

 
 


Lánþegaskírteini:

 

 

Nemendur

0 kr.

 

Starfsmenn HA og grunnskóla á Norðurlandi eystra

0 kr.

 

Aðrir lánþegar (lánþegaréttindi og kort)

4.000 kr.

 

Aðrir lánþegar - lánþegaréttindi í HA

2.000 kr.

 

Nýtt kort í stað glataðs (nemendur, aðrir lánþegar og starfsmenn grunn- og leikskóla)

2.000 kr.

 


Dagsektir:

 
 

Mánaðarlán og hálfsmánaðarlán pr. dag

20 kr.

 

Skammtímalán úr námsbókasafni

70 kr.

 

Gjald fyrir rit sem glatast (lágmarksgjald)

5.000 kr.

 


Millisafnalán:

 
 

Bækur frá innlendum söfnum

1.000 kr.

 

Bækur frá Norðurlöndum

2.000 kr.

 

Bækur frá erlendum söfnum utan Norðurlandanna

3.000 kr.

 

Ljósrit greina, 1-20 bls.

1.000 kr.

 

Ljósrit greina, 21 bls. eða fleiri

2.000 kr.

 

Grein fengin með hraðþjónustu, 1-20 bls.

2.000 kr.

 

Grein fengin með hraðþjónustu, 21 bls. eða fleiri

4.000 kr.

 


Nemendur HA greiða hálft gjald fyrir millisafnalán

 

Gjald fyrir rit sem glatast (lágmarksgjald)

5.000 kr.

 


Plöstun:

 
 

Plöstun á A4 blaði

100 kr.

 


Skönnun*:

 
 

A4 - einstök blöð öðru megin

2 kr.

 

Lágmarksverð fyrir skönnun

100 kr.

 

* ef starfsmenn skanna fyrir viðkomandi er bætt við 10 kr. á hverja síðu

 


Ljósritun og prentun*:

 
 

A4 - einstök blöð öðru megin - svart/hvítt

10 kr.

 

A4 - einstök blöð báðum megin - svart/hvítt

15 kr.

 

A3 - einstök blöð öðru megin - svart/hvítt

20 kr.

 

A3 - einstök blöð báðum megin - svart/hvítt

30 kr.

 

A4 - einstök blöð öðru megin - í lit

20 kr.

 

A4 - einstök blöð báðum megin - í lit

30 kr.

 

A3 - einstök blöð öðru megin - í lit

40 kr.

 

A3 - einstök blöð báðum megin - í lit

60 kr.

 

* ef starfsmenn prenta fyrir viðkomandi er bætt við 10 kr. á hverja síðu.

   
 

Ofangreind innheimt gjöld nemenda á bókasafni og í gagnasmiðju miðast við áætlaðan efnis- og rekstrarkostnað prentara, kostnað vegna korta og prentunar á þau og hefðbundin bókasafnsgjöld svo sem millisafnalán og dagsektir.

   

c.

Nemendaskrá:

 
 


Vottorð:

 

 

Vottorð til nemenda

300 kr.

 

Námsferilsskrá

1.000 kr.

 


Símbréf:

 

 

Símbréf sent frá HA

100 kr.

 

Hvert umframblað

20 kr.

 


Ljósritun:

 
 

A4 öðru megin

20 kr.

 

A4 báðum megin

30 kr.

 

A3 öðru megin

30 kr.

 

A3 báðum megin

40 kr.

   
 

Nemendur geta nálgast yfirlit yfir námsferil úr kerfinu Uglu án endurgjalds og við brautskráningu fá nemendur afhent brautskráningarskírteini, brautskráningarferil auk viðauka með prófskírteini á íslensku og ensku. Óski nemendur eftir staðfestu yfirliti eða vottorði að auki er innheimt gjald fyrir það. Gjald miðast við áætlaðan prent- og blaðakostnað. Sé óskað eftir gögnum í pósti er póstburðargjald innheimt samkvæmt gjaldskrá Póstsins.

 


Endurtökupróf:

 
 

Próftökugjald, endurtökupróf í janúar og júní

6.000 kr.

 

Verð miðast við kostnað vegna prófumsýslu og prófgæslu.

   

d.

Námsráðgjöf:

 
 


Námsráðgjöf – námskeið

 
 

Námskeið í námstækni

5.000 kr.

 

Námskeið í kvíðastjórnun

5.000 kr.

   
 

Verð miðast við áætlað meðaltalstímakaup námsráðgjafa auk blaða- og prent­kostn­aðar.

   

3.

Lagastoð og gildistaka.

 
 

Reglur þessar, sem samþykktar voru í háskólaráði 26. maí 2014, eru settar með stoð í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla, sbr. einnig 30. gr. reglna fyrir Háskól­ann á Akureyri nr. 387/2009, og taka þegar gildi.

Háskólanum á Akureyri, 20. júní 2014.

Stefán B. Sigurðsson rektor.

Ögmundur Knútsson,    
varaforseti háskólaráðs.

B deild - Útgáfud.: 25. júní 2014