Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 13. desember 2006 í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga samþykkt deiliskipulag frístundalóðar við Hafravatn, landnúmer 125380. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir að á lóðinni, sem er um 6.200 m² að stærð, megi reisa frístundahús allt að 60 m² auk 10 m² geymsluhúss. Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast það þegar gildi. F.h. Mosfellsbæjar, 16. mars 2007, Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi. |