Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 104/2014

Nr. 104/2014 21. janúar 2014
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 203/2003 um dreifingu ösku utan kirkjugarðs.

1. gr.

Ákvæði 1. gr. orðast svo:

Sækja má um leyfi til dreifingar á ösku látins manns utan kirkjugarðs til sýslumannsins á Siglufirði.

2. gr.

Í stað „dóms- og kirkjumálaráðuneytið“ í 2. gr. og 9. gr., „ráðuneytinu“ í 9. gr., „dóms- og kirkjumálaráðuneytinu“ í 10. gr. og „ráðuneytið“ í 10. gr. kemur, í viðeigandi beyg­ingar­falli: sýslumaður.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 4. og 5. mgr. 7. gr. og 1. mgr. 50. gr. laga nr. 36/1993 um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, með síðari breytingum, sbr. 21. gr. laga nr. 145/2013, öðlast gildi 1. febrúar 2014.

Innanríkisráðuneytinu, 21. janúar 2014.

Hanna Birna Kristjánsdóttir.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

B deild - Útgáfud.: 31. janúar 2014