Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 319/2009

Nr. 319/2009 5. mars 2009
REGLUR
um inntökuskilyrði í grunnnám við Háskóla Íslands.

I. KAFLI

1. gr.

Almennt.

Stúdentar sem hefja grunnnám til fyrstu háskólagráðu í Háskóla Íslands skulu hafa lokið stúdentsprófi, eða öðru sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Deildir geta bundið aðgang að námsleiðum frekari skilyrðum, svo sem nánar greinir í 3.-23. gr. reglna þessara.

Þeir sem lokið hafa eins árs námi (60 e) frá viðurkenndum háskóla eða skóla á háskólastigi geta talist uppfylla almenn inntökuskilyrði í grunnnám skv. 1. mgr., enda þótt þeir hafi ekki lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Um inntöku þeirra fer nánar eftir 3.-23. gr. þessara reglna.

Um undanþágur frá skilyrðinu um stúdentspróf fer samkvæmt ákvæðum sameiginlegra reglna háskólans og nánari ákvörðunum háskólaráðs.

Um inntökuskilyrði í nám á meistara- og doktorsstigi gilda sérreglur deilda, sem háskóla­ráð hefur sett og birtar eru í kennsluskrá og á vefsetrum deilda.

2. gr.

Upplýsingar um inntökuskilyrði.

Upplýsingum um inntökuskilyrði deildar skal komið á framfæri í kennsluskrá, á vefsetri háskólans og í kynningarefni til nýrra stúdenta. Skal skýrt tekið fram að inntökuskilyrði geti verið mismunandi milli deilda og námsleiða, þannig að skráning í eina deild eða náms­leið veiti ekki sjálfkrafa rétt til skráningar í aðra.

Við upplýsingagjöf um inntökuskilyrði í grunnnám skulu leiðbeiningar ennfremur veittar um frekari undirbúning sem deild telur æskilegan fyrir einstakar námsleiðir, með vísan til einingafjölda í tilteknum grunngreinum mennta- eða framhaldsskólanáms eða annarra atriða.

II. KAFLI

Inntökuskilyrði deilda á félagsvísindasviði.

3. gr.

Félags- og mannvísindadeild.

Til að hefja nám við félags- og mannvísindadeild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Lokapróf af frumgreinasviði Háskólans í Reykjavík (áður Tækniháskóla Íslands og Tækniskóla Íslands) telst sambærilegt stúdentsprófi og nægir til inntöku í BA-nám í deildinni. Lokapróf frá frumgreinadeild Keilis (háskólabrú) nægir til inngöngu í félags- og mannvísindadeild, enda hafi viðkomandi stundað nám sem er ætlað fyrir þá sem hyggja á frekara nám í hug- eða félagsvísindum. Æskilegur undir­búningur fer eftir markmiðum þeirrar námsleiðar sem valin er. Nánari upplýsingar þar um eru í kennsluskrá og kynningarefni til nýrra stúdenta.

4. gr.

Félagsráðgjafardeild.

Til að hefja nám við félagsráðgjafardeild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Lokapróf af frumgreinasviði Háskólans í Reykjavík (áður Tækniháskóla Íslands og Tækniskóla Íslands) telst sambærilegt stúdentsprófi og nægir til inntöku í BA-nám í deildinni. Lokapróf frá frumgreinadeild Keilis (háskólabrú) nægir til inngöngu í félagsráðgjafardeild, enda hafi viðkomandi stundað nám sem er ætlað fyrir þá sem hyggja á frekara nám í hug- eða félagsvísindum. Æskilegur undir­búningur fer eftir markmiðum þeirrar námsleiðar sem valin er. Nánari upplýsingar þar um eru í kennsluskrá og kynningarefni til nýrra stúdenta.

5. gr.

Hagfræðideild.

Til að hefja BS- og BA-nám við hagfræðideild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi af bóknámsbraut eða sambærilegu prófi að mati deildarinnar. Lokapróf af frumgreinasviði Háskólans í Reykjavík (áður Tækniháskóla Íslands og Tækniskóla Íslands) og stúdents­próf að lokinni viðskiptabraut og viðbótarnámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla teljast sambærileg stúdentsprófi af bóknámsbraut og nægja til inntöku í BS- og BA-nám í deildinni. Lokapróf frá frumgreinadeild Keilis (háskólabrú) nægir til inn­göngu í hagfræðideild til jafns við stúdentspróf, enda hafi viðkomandi stundað nám sem er ætlað fyrir þá sem hyggja á frekara nám í viðskiptafræði. Æskilegur undir­búningur fyrir BS-nám er að minnsta kosti 21 eining í stærðfræði og 15 einingar í ensku.

6. gr.

Lagadeild.

Til að hefja nám við lagadeild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Æskilegur undirbúningur er stúdentspróf af bóknámsbraut eða jafngilt nám, með áherslu á kunnáttu og færni í íslensku máli.

7. gr.

Stjórnmálafræðideild.

Til að hefja nám við stjórnmálafræðideild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Lokapróf af frumgreinasviði Háskólans í Reykjavík (áður Tækniháskóla Íslands og Tækniskóla Íslands) telst sambærilegt stúdentsprófi og nægir til inntöku í BA-nám í deildinni. Lokapróf frá frumgreinadeild Keilis (háskólabrú) nægir til inngöngu í stjórnmálafræðideild, enda hafi viðkomandi stundað nám sem er ætlað fyrir þá sem hyggja á frekara nám í hug- eða félagsvísindum. Æskilegur undir­búningur fer eftir markmiðum þeirrar námsleiðar sem valin er. Nánari upplýsingar þar um eru í kennsluskrá og kynningarefni til nýrra stúdenta.

8. gr.

Viðskiptafræðideild.

Til að hefja BS-nám við viðskiptafræðideild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi af bóknámsbraut eða sambærilegu prófi að mati deildarinnar. Lokapróf af frumgreinasviði Háskólans í Reykjavík (áður Tækniháskóla Íslands og Tækniskóla Íslands) og stúdents­próf að lokinni viðskiptabraut og viðbótarnámi samkvæmt aðalnámskrá framhalds­skóla, teljast sambærileg stúdentsprófi af bóknámsbraut og nægja til inntöku í BS-nám í deildinni. Lokapróf frá frumgreinadeild Keilis (háskólabrú) nægir til inngöngu í viðskiptafræðideild til jafns við stúdentspróf, enda hafi viðkomandi stundað nám sem er ætlað fyrir þá sem hyggja á frekara nám í viðskiptafræði. Æskilegur undirbúningur er minnst 15 einingar í ensku og að minnsta kosti 12 einingar í stærðfræði.

III. KAFLI

Inntökuskilyrði deilda á heilbrigðisvísindasviði.

9. gr.

Hjúkrunarfræðideild.

Til að hefja nám við hjúkrunarfræðideild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi af bók­náms­braut eða jafngildi þess. Fyrir þá stúdenta sem luku prófi skv. eldri námsskrá framhaldsskóla gildir almennt stúdentspróf. Nemendur sem hafa lokið sjúkraliðanámi, en hafa ekki stúdentspróf, geta hafið nám að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:

– Hafa náð 25 ára aldri.
– Fimm ára starfsreynsla sem sjúkraliði í minnst 80% starfi að meðaltali.
– Hafa lokið a.m.k. 9 einingum í ensku, 15 eininum í íslensku og 6 einingum í stærðfræði.

10. gr.

Lyfjafræðideild.

Til að hefja nám við lyfjafræðideild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi af bóknámsbraut eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Æskilegur undirbúningur er stúdentspróf af náttúrufræðibraut með efnafræði sem kjörsvið.

11. gr.

Læknadeild.

Til að hefja nám við læknadeild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Nemendur sem lokið hafa prófi af frumgreinasviði Háskólans í Reykjavík (áður Tækniháskóla Íslands og Tækniskóla Íslands) teljast uppfylla inn­töku­skilyrði deildarinnar vegna náms í geislafræði og lífeindafræði.

Stúdentar eru teknir inn í nám í læknisfræði og sjúkraþjálfun á grundvelli inntökuprófs sam­kvæmt nánari reglum þar að lútandi. Inntökuprófið byggist að hluta á námsefni framhalds­skóla, en einnig reynir á almenna þekkingu, siðfræðilega afstöðu og rökhugsun.

12. gr.

Matvæla- og næringarfræðideild.

Til að hefja nám við matvæla- og næringarfræðideild skal stúdent hafa lokið stúdents­prófi af bóknámsbraut framhaldsskóla. Æskilegt er að stúdentspróf sé af náttúrufræðibraut með efnafræði sem kjörsvið. Auk þess er mælt með að teknir séu áfangar af kjörsviðum stærðfræði, líffræði og eðlisfræði. Ef nám er stundað á öðrum bóknámsbrautum, þ.e. félagsfræða- eða málabraut, er æskilegt að bæta við áföngum sem veita sambærilegan undirbúning í efnafræði og stærðfræði, auk eðlisfræði og líffræði. Allir sem lokið hafa þriggja ára háskólanámi til fyrstu háskólagráðu í hvaða grein sem er uppfylla skilyrði til að innritast í matvæla- og næringarfræðideild.

13. gr.

Sálfræðideild.

Til að hefja nám við sálfræðideild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi eða öðru sam­bæri­legu prófi. Æskilegur undirbúningur er stúdentspróf af bóknámsbraut.

14. gr.

Tannlæknadeild.

Til að hefja nám við tannlæknadeild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi af bók­náms­braut eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Æskilegur undirbúningur er góð þekking í líffræði og eðlis- og efnafræði.

IV. KAFLI

Inntökuskilyrði deilda á hugvísindasviði.

15. gr.

Deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda.

Til að hefja nám við deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi frá íslenskum framhaldsskóla eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Æskilegur undirbúningur fer eftir markmiðum þeirrar námsleiðar sem valin er. Nánari upplýsingar þar um eru í kennsluskrá og kynningarefni til nýrra stúdenta.

16. gr.

Guðfræði- og trúarbragðafræðideild.

Til að hefja nám við guðfræði- og trúarbragðafræðideild skal stúdent hafa lokið stúdents­prófi eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Æskilegur undirbúningur er stúdents­próf af bóknámsbraut, með áherslu á íslensku, dönsku, ensku, sagnfræði og greinar félagsvísinda.

17. gr.

Íslensku- og menningardeild.

Til að hefja nám við íslensku- og menningardeild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi frá íslenskum framhaldsskóla eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Til að hefja nám til BA-prófs í íslensku fyrir erlenda stúdenta þarf stúdent ennfremur að standast lágmarks­kröfur á stöðuprófi sem haldið er fyrir upphaf hvers háskólaárs. Æskilegur undirbúningur fer eftir markmiðum þeirrar námsleiðar sem valin er. Nánari upplýsingar þar um eru í kennsluskrá og kynningarefni til nýrra stúdenta.

18. gr.

Sagnfræði- og heimspekideild.

Til að hefja nám við sagnfræði- og heimspekideild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi frá íslenskum framhaldsskóla eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Æskilegur undirbúningur fer eftir markmiðum þeirrar námsleiðar sem valin er. Nánari upplýsingar þar um eru í kennsluskrá og kynningarefni til nýrra stúdenta.

V. KAFLI

Inntökuskilyrði deilda á menntavísindasviði.

19. gr.

Kennaradeild.

Til að hefja Bed-nám við kennaradeild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi frá íslenskum framhaldsskóla eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Æskilegur undirbúningur fer eftir markmiðum þeirrar námsleiðar sem valin er.

Til að hefja diplómanám í kennslufræði á bakkalárstigi í kennaradeild skal stúdent hafa lokið fullgildu lokaprófi í iðngrein (meistarabréf), listgrein, tæknigrein eða verkgrein sem nýtist til kennslu á grunnskóla- eða framhaldsskólastigi í skilgreindri námsgrein eða á skilgreindu námssviði.

20. gr.

Íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild.

Til að hefja BA-, eða BS-nám í íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi frá íslenskum framhaldsskóla eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Æskilegur undirbúningur fer eftir markmiðum þeirrar námsleiðar sem valin er. Að auki þurfa þeir sem hyggja á BS-nám í íþrótta- og heilsufræði að hafa lokið 10. stigi í sundi.

21. gr.

Uppeldis- og menntunarfræðideild.

Til að hefja BA-nám skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi frá íslenskum framhaldsskóla eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Æskilegur undirbúningur fer eftir markmiðum þeirrar námsleiðar sem valin er.

VI. KAFLI

Inntökuskilyrði deilda á verk- og náttúruvísindasviði.

22. gr.

Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild, rafmagns- og
tölvuverkfræðideild og umhverfis- og byggingarverkfræðideild.

Til að hefja nám við þessar deildir skal umsækjandi hafa lokið stúdentsprófi. Fjórða stigs próf frá vélstjórnarbraut Tækniskólans (áður Vélskóla Íslands), próf frá frumgreinasviði Háskólans í Reykjavík (áður Tækniháskóla Íslands og Tækniskóla Íslands) og lokapróf frá frumgreinadeild Keilis (háskólabrú) teljast sambærileg stúdentsprófi.

Æskilegur undirbúningur: Að minnsta kosti 24 einingar í stærðfræði og 30 einingar í náttúrufræðigreinum (þar af minnst 6 einingar í eðlisfræði).

Frávik: Í tölvunarfræði er æskilegur undirbúningur að minnsta kosti 21 eining í stærðfræði.

23. gr.

Jarðvísindadeild, líf- og umhverfisvísindadeild og raunvísindadeild.

Til að hefja nám við þessar deildir skal umsækjandi hafa lokið stúdentsprófi sem inni­heldur a.m.k. 21 einingu í stærðfræði og 30 einingar í raungreinum, þar af minnst 6 einingar í eðlisfræði, 6 einingar í efnafræði og 6 einingar í lífræði, prófi frá frum­greina­sviði Háskólans í Reykjavík (áður Tækniháskóla Íslands og Tækniskóla Íslands) eða lokaprófi frá frumgreinadeild Keilis (háskólabrú), með sömu lágmarks­kröfum um stærðfræði- og raungreinagrunn og gerðar eru til stúdentsprófs sem veitir heimild til inntöku í námið.

Frávik: Inntökuskilyrði í landfræði og ferðamálafræði eru stúdentspróf, án áskilnaðar um lágmarksstærðfræði- eða raungreinagrunn.

24. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar hefur háskólaráð sett á grundvelli tillagna viðkomandi fræðasviða og með vísan til 3. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008, um opinbera háskóla.

Reglurnar öðlast þegar gildi og verður þeim beitt við inntöku stúdenta frá og með háskólaárinu 2009-2010. Jafnframt falla úr gildi eldri reglur um inntökuskilyrði í Háskóla Íslands nr. 573/2005 með áorðnum breytingum.

Háskóla Íslands, 5. mars 2009.

Kristín Ingólfsdóttir.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 25. mars 2009