Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 344/2008

Nr. 344/2008 6. mars 2008
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 731/2001, um Guðfræðistofnun Háskóla Íslands.

1. gr.

Fjórða grein breytist og verður svohjóðandi:

Ný málsgrein bætist aftan við 1. mgr. og verður 2. mgr. svohljóðandi:

Deildarfundi er heimilt að skipta stofnuninni upp í faglega sjálfstæðar einingar, í samræmi við 27. gr. reglna nr. 458/2000 fyrir Háskóla Íslands.

2. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar, sem háskólaráð hefur sett á grundvelli heimildar í 2. mgr. 19. gr. laga nr. 41/1999, sbr. 27. gr. reglna nr. 458/2000 fyrir Háskóla Íslands, öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 6. mars 2008.

Kristín Ingólfsdóttir.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 9. apríl 2008