Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur að undangenginni málsmeðferð skv. 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt eftirtaldar óverulegar breytingar á deiliskipulagi: Stórikriki 57.
Breyting á deiliskipulagi Krikahverfis, áður síðast breyttu 17. júlí 2008. Skipulagsbreytingin felst í því að gera ráð fyrir allt að 60 m² aukaíbúð í einbýlishúsi á lóðinni Stórakrika 57. Samþykkt í bæjarstjórn 28. september 2011.Frístundalóð úr landi Lynghóls, landnúmer 125325. Breyting á deiliskipulagi lóðarinnar, sem samþykkt var 4. október 2006. Skipulagsbreytingin felst í stækkun byggingarreits fyrir frístundahús um 3,5 m til austurs. Samþykkt í bæjarstjórn 17. ágúst 2011. Ofangreindar breytingar á deiliskipulagi hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi. Mosfellsbæ, 17. nóvember 2011. Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi. |