Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 271/2008

Nr. 271/2008 3. mars 2008
AUGLÝSING
um breytingu á deiliskipulagi frá Reykjalundarvegi að Húsadal, Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 16. janúar 2008 í samræmi við 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga samþykkt breytingu á „deiliskipulagi frá Reykjalundarvegi að Húsadal.“ Skipulagsbreytingin varðar lóðina Lerkibyggð 5 (Ásbúð) og felst í því að hún breytist úr einbýlislóð í parhúsalóð, byggingarreitur er lengdur til suðausturs og gerður byggingarreitur fyrir bílskúr í norðurhorni lóðarinnar.
Deiliskipulagsbreyting þessi hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 3. mars 2008,

Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 17. mars 2008