Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 482/2009

Nr. 482/2009 8. maí 2009
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2002-2024, íbúðarsvæði og reiðleið í Leirvogstungu.

Samkvæmt 2. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, hefur ráðherra þann 8. maí 2009 staðfest breytingu á aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2002-2024 frá 8. júlí 2003.
Breytingin felst í því að suðurhluti íbúðarsvæðis í Leirvogstungu stækkar til austurs og reiðleið færist vestur fyrir tengiveg vestan hverfisins. Þá minnkar opið óbyggt svæði við breytinguna.
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hefur málsmeðferð verið í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 og Skipulagsstofnun yfirfarið erindið og sent ráðherra til staðfestingar.
Breytingin öðlast þegar gildi.

Umhverfisráðuneytinu, 8. maí 2009.

F. h. r.
Magnús Jóhannesson.

Logi Kjartansson.

B deild - Útgáfud.: 26. maí 2009