Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 592/2014

Nr. 592/2014 23. júní 2014
AUGLÝSING
um stöðvun strandveiða á svæði B, frá Strandabyggð til Grýtubakkahrepps.

1. gr.

Frá og með 26. júní til og með 30. júní 2014 eru strandveiðar bannaðar á svæði B, Strandabyggð til Grýtubakkahrepps, sbr. 2. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 360/2014, um strandveiðar fiskveiðiárið 2013/2014.

2. gr.

Auglýsing þessi er gefin út með stoð í 2. mgr. 6. gr. a laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, sbr. a. lið 2. gr. laga nr. 82/2013, um breytingu á þeim lögum, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Fiskistofu, 23. júní 2014.

Hrefna Gísladóttir,
sviðsstjóri veiðiheimildasviðs.

Jón Valgeir Guðmundsson.

B deild - Útgáfud.: 23. júní 2014