Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 323/2008

Nr. 323/2008 3. apríl 2008
REGLUR
um greiðslur fyrir afnot á bókasöfnum.

1. gr.

Gildissvið.

Reglur þessar taka til greiðslna til höfunda fyrir afnot bóka á Landsbókasafni Íslands – háskólabókasafni, almenningsbókasöfnum, skólabókasöfnum og bókasöfnum stofnana sem eru rekin á kostnað ríkissjóðs eða sveitarfélaga, sbr. III. kafla laga nr. 91/2007 um bókmenntasjóð og fleira. Til afnota teljast bæði útlán og afnot bóka á lestrarsölum bókasafna.

Greiðslur samkvæmt reglum þessum eru menningarlegur stuðningur við bækur á íslenskri tungu, en fela ekki í sér höfundaréttargreiðslur.

2. gr.

Réttur til greiðslu.

Réttur til greiðslu er bundinn því að viðkomandi bók hafi verið gefin út á íslensku og hún skráð hjá Landskerfi bókasafna eða á annan sannanlegan hátt s.s. í skráningarkerfi safns sem ekki er hluti af Landskerfi bókasafna. Hann nær til frumsaminna bóka á íslensku, þýðinga, endursagnar eða staðfærslu á texta úr erlendu máli, réttur vegna þessa er þýðandans, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 91/2007. Þýðandi myndskreyttrar bókar fær þó greiðslu sem hlutfall af hlut höfundar texta.

Bækur sem eru 36 bls. að lágmarki, að undanskildum barnabókum, veita rétt til greiðslu enda séu þær prentaðar og bundnar eða í kiljuformi og til sölu á almennum markaði.

Formálar sem nema að lágmarki 36 bls. og safnrit þar sem hlutur hvers höfundar nemur að lágmarki 36 bls. svo og hljóðrit og stafrænar útgáfur bóka sem samsvara að lágmarki 36 bls. í prentuðu formi veita rétt til greiðslu samkvæmt sérstakri umsókn

Séu fleiri en einn höfundur að sama verki, skiptist réttur til úthlutunar eftir samkomulagi þeirra. Ef samkomulag næst ekki um skiptingu fer um hana samkvæmt ákvörðun úthlutunarnefndar. Séu meginhöfundar verks fleiri en þrír veitir verkið ekki rétt til úthlutunar miðað við fjölda útlána. Ritstjórar, höfundar formála og kynningartexta falla utan úthlutunarreglna.

3. gr.

Auglýsing um úthlutun.

Í janúar ár hvert skal auglýsa fyrirhugaða úthlutun í dagblöðum og leita eftir umsóknum nýrra rétthafa. Frestur til að skila inn umsókn skal vera þrjár vikur frá birtingu aug­lýsingar.

Rétthafar skv. 4. gr. laganna öðlast rétt til úthlutunar á grundvelli umsókna sem senda skal úthlutunarnefnd á þar til gerðum eyðublöðum. Nægjanlegt er að sækja um einu sinni og gildir umsókn þá ótímabundið. Litið skal á skráningu sem borist hefur á grundvelli 3. gr. reglugerðar nr. 203/1998 sem gilda umsókn skv. ákvæðum 4. og 5. gr. laga nr. 91/2007 og ákvæðum þessara reglna. Eftir það sér úthlutunarnefndin um að skrá ný verk þeirra sem þegar hafa sótt um, sbr. þó ákvæði 3. mgr. 2. gr. reglna þessara. Rétthöfum ber að tilkynna breytingar á heimilisfangi eða bankareikningi.

4. gr.

Skráning afnota.

Úthlutunarnefnd gerir samning við Landskerfi bókasafna um að veita upplýsingar um árleg útlán og fjölda eintaka verka einstakra rétthafa sem eru til afnota á lestrarsölum. Kostnaður vegna þessa greiðist af árlegri fjárveitingu Alþingis fyrir afnot á bókasöfnum. Í upplýsingum landskerfisins skulu koma fram nöfn höfunda, heiti verks, skráð eintök og fjöldi útlána á viðkomandi almanaksári.

5. gr.

Úthlutun.

Úthlutun miðast við næstliðið almanaksár og skal lokið fyrir 1. júní ár hvert.

Greiðslu fyrir útlán og afnot á lestrarsal ákvarðar úthlutunarnefnd ár hvert á grundvelli upplýsinga frá Landskerfi bókasafna samkvæmt 2. gr. reglnanna og á grundvelli hlutfallsskiptingar þegar greiðslur skiptast á milli fleiri rétthafa.

Greiðslur fyrir afnot bóka á lestrarsölum bókasafna, sem eru til í 7 eintökum eða fleiri og mælast með færri en 300 útlán, skulu jafngilda eftirfarandi margfeldi útlána: orðabækur 10 útlán, önnur verk 8 útlán.

Ef reiknað framlag nemur lægri upphæð en 3.000 kr. fellur greiðsla niður. Upphæðin er á verðlagi fjárlaga 2008 og tekur breytingum samkvæmt verðlagsuppfærslu fjárlaga hverju sinni.

6. gr.

Umsýsla.

Menntamálaráðherra heimilar úthlutunarnefnd að semja við stofnun eða félagasamtök um að annast umsýslu umsókna, greiðslur til rétthafa og önnur störf sem lúta að starfi úthlutunarnefndarinnar. Kostnaður vegna þessa greiðist af árlegri fjárveitingu Alþingis fyrir afnot á bókasöfnum.

7. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru samkvæmt 5. gr. laga nr. 91/2007 um bókmenntasjóð og fleira, öðlast þegar gildi.

Ákvæði til bráðabirgða.

Frestir samkvæmt 3. og 5. gr. reglna þessara eiga ekki við um úthlutun ársins 2008 vegna ársins 2007.

Menntamálaráðuneytinu, 3. apríl 2008.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Guðmundur Árnason.

B deild - Útgáfud.: 4. apríl 2008