Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 28. mars 2007 í samræmi við 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga samþykkt breytingar á deiliskipulagi íbúðarbyggðar í Leirvogstungu. Helstu breytingar eru þær að sett er inn ný lóð fyrir símstöð, lóð nr. 50 við Kvíslartungu er stækkuð til norðurs og gerður byggingarreitur fyrir skýli yfir taðþró, á lóðunum nr. 1-10 og nr. 24 við Leirvogstungu er húsgerð breytt úr tveggja hæða einbýlishúsum í einnar hæðar og nýtingarhlutfall er hækkað á tilteknum lóðum. Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast það þegar gildi. F.h. Mosfellsbæjar, 11. maí 2007, Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi. |