Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 364/2010

Nr. 364/2010 14. apríl 2010
AUGLÝSING
um fjöldatakmörkun í iðjuþjálfunarfræði við heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri.

1. gr.

Fjöldi þeirra nemenda sem öðlast rétt til náms á vormisseri 1. námsárs í iðjuþjálfunar­fræði í janúar 2011 við heilbrigðisvísindasvið miðast við grunntöluna 25 nemendur.

2. gr.

Ákvörðun þessi, tekin af háskólaráði, skv. lögum nr. 85/2008, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 455/2009 um fjöldatakmörkun í iðjuþjálfunarfræði við heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri.

Háskólanum á Akureyri, 14. apríl 2010.

Stefán B. Sigurðsson rektor.

B deild - Útgáfud.: 29. apríl 2010