Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 187/2014

Nr. 187/2014 19. febrúar 2014
AUGLÝSING
um breytingu á deiliskipulagi frístundalóðar nr. 125198, Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 29. janúar 2014 í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi ofangreindrar frístundalóðar. Tillagan var grenndarkynnt 19. desember 2013 til 17. janúar 2014 og bárust ekki athugasemdir.

Í breytingunni felst að leyfilegt byggingarmagn á lóðinni er aukið til samræmis við ákvæði aðalskipulags og byggingarreitur er stækkaður.

Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem lög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 19. febrúar 2014,

Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 21. febrúar 2014