Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1255/2007

Nr. 1255/2007 20. desember 2007

AUGLÝSING
um nýtt fasteignamat.

1. gr.

Samkvæmt 35. gr. laga nr. 6/2001, um skráningu og mat fasteigna, hefur yfir­fasteignamatsnefnd ákveðið framreiknistuðla fyrir skráð matsverð fasteigna á öllu landinu með hliðsjón af breytingu verðlags fasteigna við kaup og sölu frá síðasta viðmiðunartíma matsins til 31. desember nk. Nefndin hefur ákveðið framreikning á matsverði fasteigna þannig:

  1. Matsverð íbúðarhúsa og íbúðarlóða, atvinnuhúsa og atvinnuhúsalóða, sumarhúsa og sumarhúsalóða, svo og matsverð bújarða ásamt íbúðarhúsum og útihúsum á bújörðum og matsverð hlunninda, sbr. þó stafliði b, c, d og e, hækki um 12% og verður framreikningsstuðull samkvæmt því 1,12.
  2. Matsverð íbúðarhúsa og íbúðarlóða á Siglufirði og Búðum í Fáskrúðsfirði svo og matsverð atvinnuhúsa og atvinnuhúsalóða í Reykjavík, Kópavogi, á Seltjarnarnesi, í Garðabæ, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, á Álftanesi, í Reykjanesbæ, á Akranesi, í Borgar­nesi, á Akureyri, Selfossi og í Hveragerði og ennfremur matsverð sumar­húsa og sumarhúsalóða á Suður- og Suðvesturlandi frá og með Rangár­þingum að og með Skorradalshreppi svo og í Svalbarðsstrandarhreppi, Fnjóska­dal og Aðaldælahreppi hækki um 20% og verður framreikningsstuðull samkvæmt því 1,20.
  3. Matsverð íbúðarhúsa og íbúðarlóða á Seltjarnarnesi, í Stykkishólmi, á Blönduósi, Eyrarbakka, Stokkseyri og í þéttbýli í Snæfellsbæ hækki um 16% og verður framreikningsstuðull samkvæmt því 1,16.
  4. Matsverð íbúðarhúsa og íbúðarlóða á Akranesi, í Búðardal, á Patreksfirði, Tálkna­firði, Bíldudal, í Grímsey, á Kópaskeri, Raufarhöfn, Bakkafirði og Hornafirði svo og matsverð atvinnuhúsa og atvinnuhúsalóða (annarra en útihúsa á bújörðum) á Snæfellsnesi, í Dalabyggð, á Þórshöfn, í Vopnafjarðarhreppi og á Suður- og Suðausturlandi frá og með Mýrdalshreppi að og með Breiðdalshreppi hækki um 6% og verður framreikningsstuðull samkvæmt því 1,06.
  5. Matsverð atvinnuhúsa og atvinnuhúsalóða (annarra en útihúsa á bújörðum) á Vestfjörðum frá og með Reykhólahreppi að og með Strandabyggð, í Grímsey, Fjallabyggð, Norðurþingi (að frátalinni Húsavík), Tjörneshreppi, Svalbarðshreppi, Langanesbyggð (að frátaldinni Þórshöfn) og í Vestmannaeyjum verði óbreytt og verður framreikningsstuðull samkvæmt því 1,00.

Við framreikning ársins á ofangreindum grundvelli skal höfð hliðsjón af fyrningu sam­kvæmt reglum Fasteignamats ríkisins fyrir einstakar tegundir eigna.

Ofangreind breyting fasteignamats er miðuð við fasteignamatsverð samkvæmt fast­eigna­skrá þeirri er gildi tók 31. desember 2006 með síðari breytingum ákveðnum af Fasteigna­mati ríkisins og yfirfasteignamatsnefnd.

2. gr.

Á vegum Fasteignamats ríkisins hefur verið samin ný fasteignaskrá, þar sem matsverð einstakra fasteigna er skráð samkvæmt þeim framreiknistuðlum sem ákveðnir hafa verið samkvæmt framanskráðu. Hin nýja fasteignaskrá inniheldur einnig þær matsbreytingar sem Fasteignamat ríkisins eða yfirfasteignamatsnefnd hefur gert á einstökum fasteignum svo sem við endurskoðun á eldra mati og vegna úrskurða á kærum er kunna að hafa leitt til matsbreytinga.

3. gr.

Fjármálaráðherra hefur staðfest heildareintak hins nýja fasteignamats eins og það hefur verið ákveðið með ofangreindum hætti. Fasteignaskráin mun liggja frammi til sýnis á skrifstofu Fasteignamatsins, Borgartúni 21, Reykjavík, frá og með 31. desember nk. Frá sama tíma mun hið nýja matsverð einnig koma fram í uppflettingu hjá þeim aðilum sem eru í beinu tölvusambandi við stofnunina. Jafnframt verður eigendum fasteigna send sérstök tilkynning um breytingu á matsverði viðkomandi fasteigna.

4. gr.

Með vísan til laga nr. 6/2001 tilkynnir ráðuneytið hér með að nýtt matsverð fasteigna, sem ákveðið er með ofangreindum hætti og fram kemur í staðfestri skrá Fasteignamats ríkisins, tekur gildi 31. desember 2007.

Með auglýsingu þessari fellur úr gildi auglýsing nr. 1071 frá 15. desember 2006.

Fjármálaráðuneytinu, 20. desember 2007.

F. h. r.

Baldur Guðlaugsson.

Hafsteinn S. Hafsteinsson.


B-deild - Útgáfud.: 28. desember 2007

  Til baka