Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 153/2007

Nr. 153/2007 19. desember 2007
LÖG
um breytingu á lögum um úrvinnslugjald, nr. 162/2002, með síðari breytingum.

FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.
    Í stað orðanna „1. janúar 2008“ í fyrri málslið 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða I við lögin kemur: 1. janúar 2010.

2. gr.
    Í stað „25,00 kr./kg“ í viðauka I við lögin kemur: 3,00 kr./kg.

3. gr.
    Í stað „20,00 kr./kg“ í viðauka VIII við lögin kemur hvarvetna: 25,00 kr./kg.

4. gr.
    Eftirfarandi breytingar verða á viðauka XII við lögin:
    a.    Í stað „51,00 kr./kg“ kemur: 72,00 kr./kg.
    b.    Í stað „85,00 kr./kg“ kemur: 120,00 kr./kg.
    c.    Í stað „170,00 kr./kg“ kemur: 240,00 kr./kg.
    d.    Í stað „204,00 kr./kg“ kemur: 288,00 kr./kg.
    e.    Í stað „272,00 kr./kg“ kemur: 384,00 kr./kg.
    f.     Í stað „408,00 kr./kg“ kemur: 576,00 kr./kg.

5. gr.
    Í stað tollskrárnúmers „8429.5200 – – Vélbúnaður með yfirbyggingu sem snúist getur 360° 9.000 kr./stk.“ í viðauka XVI við lögin kemur: 8429.5201 – – Gröfur sem koma á hjólbörðum 9.000 kr./stk.

6. gr.
    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2008.

Gjört í Reykjavík, 19. desember 2007.

Ólafur Ragnar Grímsson.
(L. S.)

Þórunn Sveinbjarnardóttir.

A deild - Útgáfud.: 28. desember 2007