Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
533/2009
|
1. gr. Geislavarnir ríkisins innheimta gjald vegna lögbundins eftirlits með geislatækjum og geislavirkum efnum í samræmi við 5. og 17. gr. laga nr. 44/2002 um geislavarnir. Gjaldið skal vera sem hér segir: 1. | Röntgentæki: | kr. | | | a) | Föst röntgentæki til sjúkdómsgreiningar – myndataka | 41.172 | | | | fyrir hvert tæki til viðbótar á sömu deild | 13.760 | | | b) | Föst röntgentæki til sjúkdómsgreiningar – skyggning | 51.383 | | | | fyrir hvert tæki til viðbótar á sömu deild | 17.203 | | | c) | Tölvusneiðmyndatæki | 68.586 | | | | fyrir hvert tæki til viðbótar á sömu deild | 41.172 | | | d) | Færanleg röntgentæki til sjúkdómsgreiningar – myndataka | 34.298 | | | | fyrir hvert tæki til viðbótar á sömu deild | 10.318 | | | e) | Færanleg röntgentæki til sjúkdómsgreiningar – skyggning | 41.172 | | | | fyrir hvert tæki til viðbótar á sömu deild | 13.760 | | | f) | Tannröntgentæki | 20.527 | | | | fyrir hvert tæki til viðbótar | 8.543 | | | g) | Iðnaðarröntgentæki | 34.319 | | | | fyrir hvert tæki til viðbótar | 17.203 | | | h) | Dýralækningaröntgentæki | 34.319 | | | | fyrir hvert tæki til viðbótar | 10.318 | | | i) | Öryggisröntgentæki | 23.971 | | | | fyrir hvert tæki til viðbótar | 10.318 | | | j) | Röntgentæki til efnarannsókna og gæðaeftirlits í iðnaði | 20.527 | | | | fyrir hvert tæki til viðbótar | 6.885 | | | | | | | | | | 2. | Geislalækningatæki | 48.058 | | | fyrir hvert tæki til viðbótar á sömu deild | 13.760 | | | | | | | | | | 3. | Geislavirk efni, opnar geislalindir: | | | | Rannsóknastofa í flokki A | 54.825 | | | Rannsóknastofa í flokki B | 41.172 | | | Rannsóknastofa í flokki C | 27.413 | | | | | | | | | | 4. | Geislavirk efni, lokaðar geislalindir: | | | | Nifteindalindir | 34.287 | | | fyrir hverja nifteindalind til viðbótar hjá sama aðila | 13.760 | | | aðrar lokaðar geislalindir | 27.413 | | | fyrir hverja eins lind til viðbótar: | | | | 4 eða færri til viðbótar á sama stað | 8.543 | | | fyrir hverja lind umfram 5 á sama stað | 6.885 | | | | | | | | | | 5. | Eftirlit með geislaálagi starfsfólks: | | | | Filmumælingar, fyrir hverja filmu | 566 |
2. gr. Geislavarnir ríkisins innheimta gjald vegna mats á umsóknum um leyfi í samræmi við 7., 9. og 20. gr. laga nr. 44/2002 um geislavarnir. Gjaldið skal vera sem hér segir: 1. | Vegna röntgentækja til sjúkdómsgreiningar: | kr. | | | a) | Leyfi vegna nýrra tækja | 8.543 | | | b) | Leyfi vegna breytinga á eldri búnaði | 6.885 | | | | | | | | | 2. | Vegna iðnaðar-, öryggis- og efnarannsóknatækja: | | | | Leyfi vegna nýrra tækja og breytinga | 6.885 | | | | | | | | | 3. | Vegna lokaðra geislalinda: | | | | | | a) | Nifteindalindir | 10.318 | | | b) | Aðrar geislalindir | 8.543 | | | | | | | | | 4. | Vegna opinna geislalinda: | | | | | | a) | Ný starfsemi | | | | | | | i. | Flokkur A | 13.760 | | | | ii. | Flokkur B | 10.318 | | | | iii. | Flokkur C | 6.885 | | | b) | Árleg endurnýjun | | | | | | | i. | Flokkur A | 7.441 | | | | ii. | Flokkur B | 6.885 | | | | iii. | Flokkur C | 5.100 |
3. gr. Geislavarnir ríkisins annast innheimtu leyfis- og eftirlitsgjalda. Leyfis- og eftirlitsgjöld falla í gjalddaga við útgáfu reiknings með eindaga 30 dögum síðar. 4. gr. Eigandi eða ábyrgðarmaður getur óskað eftir aukaeftirliti og skal þá greiða fyrir það sem um reglubundið eftirlit væri að ræða. Þurfi Geislavarnir ríkisins að endurtaka eftirlit vegna athugasemda sem gerðar voru við reglubundið eftirlit skal greiða fyrir það sem um reglubundið eftirlit væri að ræða. 5. gr. Geislavarnir ríkisins innheimta gjald sem nemur 6.853 kr./klst. fyrir veitta þjónustu og verkefni sem stofnuninni er falið að annast eða hún tekur að sér samkvæmt lögum og reglugerðum. 6. gr. Eftirlits- og leyfisgjöld eru tryggð með lögveðsrétti í eftirlitsskyldum tækjum í 2 ár eftir gjalddaga. 7. gr. Fyrir hverja mælingu á geislavirkni skal stofnunin innheimta gjald, allt að upphæð kr. 16.978. Fyrir hverja yfirlýsingu um geislavirkni sem stofnunin lætur í té, skal innheimta kr. 2.887. 8. gr. Gjaldskrá þessi, sem sett er með heimild í 19. gr. laga nr. 44/2002 um Geislavarnir ríkisins, staðfestist hér með til þess að gilda á árinu 2009 og öðlast þegar gildi. Heilbrigðisráðuneytinu, 2. júní 2009. Ögmundur Jónasson. Berglind Ásgeirsdóttir.
|
B-deild - Útgáfud.:
22. júní 2009
|