Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 132/2012

Nr. 132/2012 28. desember 2012
LÖG
um breytingu á lögum um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, nr. 99/1999, með síðari breytingum (álagningarstofnar eftirlitsgjalds).

HANDHAFAR VALDS FORSETA ÍSLANDS
   samkvæmt 8. gr. stjórnarskrárinnar
forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar,
gjöra kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og vér staðfest þau með samþykki voru:

1. gr.
    Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:
    a.    Í stað „0,0338%“ í a-lið 1. tölul. 1. mgr. kemur: 0,0323%.
    b.    Í stað „0,0303%“ í b-lið 1. tölul. 1. mgr. kemur: 0,0292%.
    c.    Í stað „0,356%“ í 2. tölul. 1. mgr. kemur: 0,404%.
    d.    Í stað „0,192%“ í 3. tölul. 1. mgr. kemur: 0,223%.
    e.    Í stað „0,41%“ í 4. og 5. tölul. 1. mgr. kemur: 0,51%.
    f.     Í stað „0,033%“, „0,025%“ og „300.000 kr.“ í 6. tölul. 1. mgr. kemur: 0,0344%; 0,015%; og: 200.000 kr.
    g.    Í stað „0,7%“ í 7. tölul. 1. mgr. kemur: 0,71%.
    h.    Í stað „0,81%“ í 8. tölul. 1. mgr. kemur: 0,82%.
    i.     Í stað „0,011%“, „1.140.000 kr.“, „1.720.000 kr.“, „3.000.000 kr.“, „5.580.000 kr.“ og „6.470.000 kr.“ í 9. tölul. 1. mgr. kemur: 0,0114%; 1.200.000 kr.; 1.930.000 kr.; 3.370.000 kr.; 6.260.000 kr.; og: 7.260.000 kr.
    j.     Í stað „0,0043%“ í 11. tölul. 1. mgr. kemur: 0,0068%.
    k.    Í stað „0,0092%“ í 12. tölul. 1. mgr. kemur: 0,0088%.
    l.     9. mgr. orðast svo:
               Fjármálafyrirtæki sem er stýrt af slitastjórn eða bráðabirgðastjórn samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, óháð því hvort viðkomandi fyrirtæki hefur starfsleyfi, takmarkað starfsleyfi eða starfsleyfi þess hefur verið afturkallað, greiðir fastagjald. Gjaldið miðast við það starfsleyfi sem fyrirtækið hafði áður en það fór undir yfirráð slitastjórnar eða bráðabirgðastjórnar og greiðist samkvæmt eftirfarandi sundurliðun: Viðskiptabankar 6.000.000 kr., aðrar lánastofnanir 3.000.000 kr. og önnur fjármálafyrirtæki 1.000.000 kr. Gjald samkvæmt þessari málsgrein greiðist þangað til slitum er lokið en um gjaldið fer skv. 110. gr. laga nr. 21/1991, um gjaldþrotaskipti o.fl. Fyrirtæki greiðir eftirlitsgjald samkvæmt viðeigandi töluliðum 1. mgr. þar til það fer undir yfirráð slitastjórnar eða bráðabirgðastjórnar en hlutfallslega skv. 2. málsl. þessarar málsgreinar frá því tímamarki.

2. gr.
    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2013.

Gjört í Reykjavík, 28. desember 2012.

Jóhanna Sigurðardóttir.

Ásta R. Jóhannesdóttir.
(L. S.)

Markús Sigurbjörnsson.

Steingrímur J. Sigfússon.

A deild - Útgáfud.: 31. desember 2012