Samkvæmt 19. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 hefur ráðherra þann 18. maí 2011 staðfest breytingu á aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2002-2024, frá 8. júlí 2003. Breytingin felst í því að 6,2 ha óbyggðu svæði er breytt í svæði fyrir þjónustustofnanir. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hefur málsmeðferð verið í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 og Skipulagsstofnun gert tillögu til ráðherra um staðfestingu. Breytingin öðlast þegar gildi. Umhverfisráðuneytinu, 18. maí 2011. F. h. r. Magnús Jóhannesson. Íris Bjargmundsdóttir. |