Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
202/2011
|
1. gr. Við 3. tl. 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður m, sem orðast svo: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 273/2010 frá 30. mars 2010. 2. gr. Viðaukar A og B við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1144/2009 frá 26. nóvember 2009 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 474/2006 frá 22. mars 2006 um að stofna skrá Bandalagsins yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur innan Bandalagsins sem um getur í II. kafla reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2111/2005 í fylgiskjali IV við reglugerðina falla niður. 3. gr. Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 273/2010 frá 30. mars 2010 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 474/2006 frá 22. mars 2006 um að stofna skrá Bandalagsins yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur innan Bandalagsins sem um getur í II. kafla reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2111/2005 með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1, um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5, 27. janúar 2011, bls. 210. 4. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 3. gr., 1. mgr. 4. gr. og 5. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 sem síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Innanríkisráðuneytinu, 9. febrúar 2011. Ögmundur Jónasson. Ragnhildur Hjaltadóttir.
|
B-deild - Útgáfud.:
4. mars 2011
|