Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 177/2007

Nr. 177/2007 31. desember 2007
REGLUGERÐ
um Stjórnarráð Íslands.

Forseti Íslands

gjörir kunnugt: Að ég, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, staðfesti svohljóðandi reglugerð um Stjórnarráð Íslands:

1. gr.

Stjórnarmálefni ber undir ráðuneyti eftir ákvæðum reglugerðar þessarar.

2. gr.

Forsætisráðuneyti fer með mál, er varða:

1. Stjórnskipan lýðveldisins og stjórnarfar almennt.

2. Embætti forseta Íslands og embættisbústað.

3. Ríkisráð Íslands.

4. Alþingi.

5. Skipun ráðherra og lausn.

6. Skiptingu starfa milli ráðherra og ráðuneyta.

7. Ríkisstjórn og Stjórnarráð Íslands í heild, þar á meðal ráðstöfun skrifstofuhúsa og gestahúsa ríkisstjórnarinnar.

8. Fána Íslands, ríkisskjaldarmerki og þjóðsöng Íslendinga.

9. Hina íslensku fálkaorðu og önnur heiðursmerki.

10. Þjóðlendur.

11. Þingvelli og Þingvallaþjóðgarð.

12. Hagstjórn almennt.

13. Vísinda- og tækniráð.

14. Seðlabanka Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (IMF).

15. Embætti ríkislögmanns.

16. Umboðsmann barna.

17. Hagstofu Íslands.

18. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar.

3. gr.

Dóms- og kirkjumálaráðuneyti fer með mál, er varða:

1. Lögsagnarumdæmi, dómaskipan, dómstóla, aðra en Félagsdóm, réttarfar og málflutningsmenn.

2. Meðferð ákæruvalds, er það ber undir dómsmálaráðherra að lögum, og eftirlit með framkvæmd ákæruvalds annars.

3. Fullnustu refsingar, fangelsi og fangavist, reynslulausn refsifanga, samfélagsþjónustu, náðun, sakaruppgjöf, uppreist æru og framsal sakamanna.

4. Lögreglu og löggæslu.

5. Gæslu landhelgi og fiskimiða, sjómælingar og sjókortagerð.

6. Eftirlit með innflutningi, framleiðslu, sölu og meðferð skotvopna, skotfæra og sprengja.

7. Framkvæmd áfengislöggjafar, sem eigi ber undir annað ráðuneyti.

8. Skipströnd og vogrek.

9. Útlendinga, að frátöldum atvinnuréttindum.

10. Vegabréf, önnur en diplómatísk vegabréf.

11. Sifjarétt, erfðarétt, persónurétt og yfirfjárráð.

12. Eignarrétt og afnotarétt fasteigna og framkvæmd eignarnáms, sem eigi ber undir annað ráðuneyti.

13. Ríkisborgararétt.

14. Prentfrelsi og prentrétt.

15. Mannréttindi.

16. Kjör forseta Íslands, kosningar til Alþingis, þjóðaratkvæði og aðrar almanna­kosningar, sem eigi ber undir annað ráðuneyti.

17. Birtingu laga og stjórnvaldserinda, útgáfu Stjórnartíðinda, Lagasafns og Lögbirtingablaðs.

18. Staðfestingu á skipulagsskrám sjóða og stofnana.

19. Happdrætti, veðmálastarfsemi, hlutaveltur, getraunir og almennar fjársafnanir.

20. Niðurjöfnunarmenn sjótjóns, dómtúlka og skjalaþýðendur.

21. Almannavarnir, björgunarmál, samræmda neyðarsímsvörun og öryggisþjónustu í atvinnuskyni.

22. Kirkjumál og safnaða, þar á meðal embætti biskups og skipan prestakalla.

23. Grafreiti og útfararstofnanir, þar á meðal bálstofur.

24. Skaðabætur utan samninga.

25. Þjóðskrá, lögheimilismál og almannaskráningu.

4. gr.

Félags- og tryggingamálaráðuneyti fer með mál, er varða:

A. Velferðar- og fjölskyldumál, þar á meðal:

1. Félagsþjónustu sveitarfélaga.

2. Málefni fatlaðra.

3. Barnavernd.

4. Málefni aldraðra.

5. Uppbyggingu og öldrunarþjónustu á hjúkrunarheimilum.

6. Lífeyristryggingar almannatrygginga og félagslega aðstoð.

7. Málefni langveikra barna og alvarlega fatlaðra barna.

B. Húsnæði, þar á meðal:

1. Íbúðalánasjóð og varasjóð húsnæðismála.

2. Húsaleigumál, þ.m.t. stuðningsaðgerðir við uppbyggingu félagslegra leiguíbúða á vegum sveitarfélaga og félagasamtaka og húsaleigubætur.

3. Húsnæðissamvinnufélög, byggingarsamvinnufélög og fjöleignarhús.

C. Vinnumarkað, þar á meðal:

1. Réttindi og skyldur á vinnumarkaði, s.s. orlof, starfsmenntun í atvinnulífinu og samskipti við aðila vinnumarkaðarins.

2. Félagsdóm.

3. Sáttastörf í vinnudeilum.

4. Aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.

5. Vinnumarkaðsaðgerðir, þ. á m. vinnumiðlun, mat á vinnufærni atvinnuleitenda og skipulag vinnumarkaðsúrræða.

6. Atvinnuleysistryggingar.

7. Málefni innflytjenda.

8. Atvinnuréttindi útlendinga.

9. Ábyrgð á launum við gjaldþrot.

10. Fæðingar- og foreldraorlof.

D. Jafnréttismál.

5. gr.

Fjármálaráðuneyti fer með mál, er varða:

1. Fjármál ríkisins, að því leyti sem þau eru ekki fengin öðrum aðilum.

2. Eignir ríkisins, þar á meðal verðbréf og hlutabréf, svo og fyrirsvar þeirra vegna, meðal annars að því er tekur til stjórnar fyrirtækja í eigu ríkisins að öllu leyti eða nokkru, nema lagt sé til annars ráðuneytis.

3. Skatta, tolla og aðrar ríkistekjur. Tollgæslu. Bókhald ríkisins.

4. Almennt eftirlit með framkvæmd fjárlaga.

5. Lánsfjármál ríkissjóðs, lántökur ríkisstofnana og ríkisábyrgðir.

6. Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins.

7. Launa-, kjara- og lífeyrismál starfsmanna ríkisins, réttindi þeirra og skyldur.

8. Lífeyrissjóði.

9. Endurskoðendur og framkvæmd bókhalds- og ársreikningalaga.

10. Skráningu fyrirtækja. Norræna fjárfestingarbankann.

11. Undirbúning og samning frumvarps til fjárlaga.

12. Mat á þróun og horfum í efnahagsmálum.

13. Fasteignaskráningu og fasteignamat.

14. Húsnæðis- og bifreiðamál ríkisins.

15. Opinberar framkvæmdir ríkisins.

16. Opinber innkaup.

17. Almennar umbætur í ríkisrekstri.

6. gr.

Heilbrigðisráðuneyti fer með mál, er varða:

A. Heilbrigðisþjónustu, þar á meðal:

1. Lýðheilsu og forvarnir, þ.m.t. geislavarnir.

2. Heilsugæslu.

3. Sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir.

4. Heilbrigðisþjónustu á hjúkrunarheimilum.

5. Endurhæfingar- og meðferðarstofnanir.

6. Lyf og lækningatæki.

7. Starfsréttindi í heilbrigðisþjónustu og löggildingu starfsheita í heilbrigðisgreinum.

B. Sjúkra- og slysatryggingar almannatrygginga og sjúklingatryggingu.

7. gr.

Iðnaðarráðuneyti fer með mál, er varða:

1. Iðnað og stóriðju. Nýsköpun og tækniþróun.

2. Starfsréttindi í iðnaði og löggildingu starfsheita í tækni- og hönnunargreinum.

3. Orku, þ. á m. grunnrannsóknir á orkulindum, nýtingu orku og orkufyrirtæki.

4. Jarðrænar auðlindir á landi og á hafsbotni.

5. Svæða- og byggðamál, svæða- og byggðarannsóknir, atvinnuþróun og atvinnu­þróunarfélög.

6. Staðla.

7. Ferðaþjónustu.

8. gr.

Menntamálaráðuneyti fer með mál, er varða:

1. Kennslu og skóla á leikskóla-, grunnskóla-, framhaldsskóla- og háskólastigi, auk sérskóla, sem eigi ber undir annað ráðuneyti.

2. Símenntun, almenna fræðslustarfsemi og námsefnisgerð.

3. Námslán og námsstyrki.

4. Rannsókna- og vísindastarfsemi, sem eigi ber undir annað ráðuneyti.

5. Söfn og minjar.

6. Listir, stuðning við þær og kynningu innan lands og utan.

7. Menningarstarfsemi hvers konar, stuðning við hana og kynningu innan lands og utan.

8. Höfundarétt.

9. Íslenska tungu, örnefni og bæjanöfn.

10. Útvarp og aðra fjölmiðla.

11. Íþrótta- og æskulýðsstarfsemi.

9. gr.

Samgönguráðuneyti fer með mál, er varða:

1. Skipulag samgangna og flutninga á landi, í lofti og á sjó.

2. Vegi og vegagerð.

3. Umferð og eftirlit með ökutækjum.

4. Flug og flugvelli, þ. á m. Keflavíkurflugvöll.

5. Siglingar, þ. á m. atvinnuréttindi og lögskráningu sjómanna.

6. Vita, hafnir og sjóvarnir.

7. Öryggi í samgöngum og slysarannsóknir þeim tengdar.

8. Fjarskipti.

9. Póstþjónustu.

10. Sveitarstjórnarmál, þar á meðal stjórnsýslu og verkefni sveitarfélaga, tekjustofna og fjármál þeirra, sveitarstjórnarkosningar og mörk sveitarfélaga.

10. gr.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti fer með mál, er varða:

A. Sjávarútveg, þar á meðal:

1. Rannsókn, verndun og nýtingu fiskistofna og annarra lifandi auðlinda hafsins og hafsbotnsins, sem og stjórnun svæða þar sem þær eru nýtanlegar.

2. Eftirlit með verndun og nýtingu fiskistofna og annarra lifandi auðlinda hafsins og hafsbotnsins, sem og stjórnun svæða þar sem þær eru nýtanlegar.

3. Rannsóknir og eftirlit með framleiðslu og innflutningi sjávarafurða.

4. Eldi nytjastofna sjávar.

5. Stuðning við rannsóknir, þróun og nýsköpun í sjávarútvegi.

6. Verðlagsstofu skiptaverðs og verðlagsráð sjávarútvegsins.

7. Þróunarsjóð sjávarútvegsins.

B. Landbúnað, þar á meðal:

1. Rannsóknir og eftirlit í landbúnaði.

2. Nytjaskógrækt á bújörðum og landshlutaverkefni í skógrækt.

3. Jarðir í eigu og umsjá ríkisins, þ.m.t. kirkjujarðir.

4. Landnotkun í þágu landbúnaðar og önnur jarða- og ábúðarmál.

5. Áveitur og framræslu.

6. Framleiðslu- og markaðsmál í landbúnaði, inn- og útflutning landbúnaðarafurða.

7. Inn- og útflutning dýra og plantna og erfðaefnis þeirra, varðveislu erfðaauðlinda í landbúnaði og yrkisrétt.

8. Aðbúnað búfjár og heilbrigði dýra, varnir gegn dýrasjúkdómum, gæði og heilnæmi aðfanga og landbúnaðarafurða.

9. Veiði í ám og vötnum, eldi vatnadýra og önnur veiðimál.

10. Lán og stuðning við nýsköpun og starfsemi á sviði landbúnaðar.

11. Hagrannsóknir og áætlunargerð í landbúnaði.

C. Matvæli, matvælaeftirlit og matvælarannsóknir.

11. gr.

Umhverfisráðuneyti fer með mál er varða:

1. Náttúruvernd, þ.m.t. landgræðslu, vernd vistkerfa og líffræðilegrar fjölbreytni og erfðaauðlinda, þjóðgarða, aðra en Þingvallaþjóðgarð, og friðlýst svæði.

2. Friðunar- og uppgræðsluaðgerðir á sviði gróður- og skógverndar, skógrækt, aðra en landshlutabundna og nytjaskóga, og fyrirhleðslur.

3. Rannsóknir á sviði umhverfismála og umhverfisvöktun, sem ekki er lögð til annars ráðuneytis.

4. Mengunarvarnir, meðhöndlun úrgangs, hollustuhætti, heilbrigðiseftirlit, eiturefni og hættuleg efni.

5. Skipulagsmál, mat á umhverfisáhrifum og gerð landnýtingaráætlana.

6. Byggingarmál og brunavarnir.

7. Veðurþjónustu, varnir gegn ofanflóðum, fjarkönnun og mælingar og rannsóknir á vatnafari landsins.

8. Dýravernd og stjórnun veiða á villtum fuglum og villtum spendýrum öðrum en sjávarspendýrum.

9. Loftslagsvernd.

10. Landmælingar og kortagerð.

12. gr.

Utanríkisráðuneyti fer með mál, er varða:

1. Skipti forseta Íslands og annarra þjóðhöfðingja.

2. Sendiráð, fastanefndir og ræðisskrifstofur Íslands erlendis.

3. Sendiráð og ræðisskrifstofur erlendra ríkja á Íslandi.

4. Skipti við erlend ríki.

5. Réttindi Íslendinga og íslenska hagsmuni erlendis.

6. Samninga við önnur ríki og gerð þeirra.

7. Aðild Íslands að alþjóðlegum samtökum, stofnunum, ráðstefnum og fundum, er varða opinbera hagsmuni og eigi ber undir annað ráðuneyti, samkvæmt ákvæðum þessarar reglugerðar eða eðli máls.

8. Diplómatísk vegabréf, þjónustuvegabréf og áritun vegabréfa.

9. Kynningu Íslands og íslenskra efna með öðrum þjóðum, nema slík mál séu lögð til annars ráðuneytis.

10. Varnarmál, aðild að Atlantshafsbandalaginu (NATO), varnarsamning Íslands og Bandaríkjanna, samskipti og samstarf við erlend ríki, hermálayfirvöld og alþjóðastofnanir á sviði öryggis- og varnarmála, varnarsvæði, öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli og önnur öryggissvæði, rekstur mannvirkja og eigna Atlantshafsbandalagsins á Íslandi, þ.m.t. íslenska ratsjár- og loftvarnakerfið (IADS).

11. Útflutningsverslun.

12. Undirbúning og framkvæmd viðskiptasamninga.

13. Skipti Íslands við alþjóðleg viðskiptasamtök.

14. Vörusýningar erlendis.

15. Þróunarsamvinnu, friðargæslu og neyðarhjálp.

13. gr.

Viðskiptaráðuneyti fer með mál, er varða:

1. Verslun og viðskipti með vöru og þjónustu, aðra en útflutningsverslun.

2. Fjármálamarkað. Vátryggingar og vátryggingastarfsemi.

3. Vexti og verðtryggingu.

4. Fjárfestingar erlendra aðila. Gjaldeyri.

5. Samkeppnismál og óréttmæta viðskiptahætti.

6. Neytendavernd, þ. á m. alferðir.

7. Vog, mál og faggildingu. Vöruöryggi.

8. Hlutafélög, einkahlutafélög, samvinnufélög og önnur félög og sjálfseignarstofnanir, sem stunda atvinnurekstur, þó ekki skráningu þeirra. Firmu.

9. Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu (EBRD).

10. Fasteignakaup og sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa.

11. Hugverkaréttindi á sviði iðnaðar, m.a. einkaleyfi, vörumerki og hönnun.

14. gr.

Málefni, sem eigi er getið í 2. - 13. gr., skulu lögð til ráðuneytis, þar sem þau eðli sínu samkvæmt eiga heima, sbr. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 73/1969.

15. gr.

Nú leikur vafi á, hvaða ráðuneyti skuli með mál fara, og sker forsætisráðherra þá úr.

16. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 8. gr. laga nr. 73/1969, öðlast gildi 1. janúar 2008. Jafnframt fellur þá úr gildi reglugerð um Stjórnarráð Íslands frá 1. febrúar 2004, með síðari breytingum.

Ákvæði til bráðabirgða.

I.

Utanríkisráðherra fer með skipulags- og byggingar-, gatnagerðar-, sorphirðu- og veitumál á flugvallarsvæði Keflavíkurflugvallar, sbr. 2. gr. laga nr. 176/2006 um ráðstafanir í kjölfar samnings við Bandaríkin um skil á varnarsvæðinu Keflavíkurflugvelli.

II.

Varnarsvæðin við Bolafjall, Gunnólfsvíkurfjall og Stokksnes, sem skilað var til íslenskra stjórnvalda 30. september 2006, teljast áfram varnarsvæði í skilningi laga nr. 106/1954, um yfirstjórn mála á varnarsvæðunum o.fl., þar til utanríkisráðherra birtir auglýsingu um að slíkt landsvæði, að hluta eða í heild, hafi verið tekið til annarra nota.

Gjört á Bessastöðum, 31. desember 2007.

Ólafur Ragnar Grímsson.

(L. S.)

Geir H. Haarde.

A deild - Útgáfud.: 2. janúar 2008