1. gr. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 95/2009 frá 25. september 2009, gildir reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB), nr. 279/2009 frá 6. apríl 2009, um breytingar í viðauka II með tilskipun 2005/36/EB um viðurkenningu á menntun og hæfi í samræmi við ákvæði 11. gr. c (ii). 2. gr. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 21, 17. árg., bls. 71. 3. gr. Ef ósamræmi er á milli íslensks og ensks texta reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 279/2009 skal skýra íslenska textann með hliðsjón af enska textanum. 4. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 9. gr. laga nr. 26/2010 um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi, öðlast þegar gildi. Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 27. apríl 2010. Katrín Jakobsdóttir. Ásta Magnúsdóttir. |