Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 206/2012

Nr. 206/2012 29. febrúar 2012
REGLUGERÐ
um strandveiðar fiskveiðiárið 2011/2012.

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um strandveiðar, þar sem fenginn afli telst ekki til aflamarks eða krókaaflamarks, samkvæmt 6. gr. a í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

2. gr.

Strandveiðar.

Í maí, júní, júlí og ágúst 2012 er, að fengnu leyfi Fiskistofu, heimilt að veiða á handfæri allt að 8.600 lestir samtals af óslægðum botnfiski, sem ekki reiknast til aflamarks eða krókaaflamarks þeirra fiskiskipa sem stunda handfæraveiðar samkvæmt reglugerð þessari.

3. gr.

Leyfi til veiða.

Fiskistofu er eingöngu heimilt að veita fiskiskipi leyfi til strandveiða að fullnægðum ákvæðum 5. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða.

Einungis er heimilt að veita hverri útgerð, eiganda, einstaklingi eða lögaðila, leyfi til strandveiða fyrir eitt fiskiskip.

Eigandi fiskiskips skal vera lögskráður á skipið. Þegar fiskiskip er í eigu lögaðila er fullnægjandi ef einn eigenda lögaðilans er lögskráður á skipið. Í umsókn lögaðila um leyfi til strandveiða skulu koma fram upplýsingar um eignarhald á lögaðilanum og þann/þá sem koma til með að vera lögskráðir á fiskiskip.

Óheimilt er að veita fiskiskipi leyfi til strandveiða hafi aflamark í þorskígildum talið, umfram það aflamark sem flutt hefur verið til þess á fiskveiðiárinu, verið flutt af því. Eftir útgáfu leyfis til strandveiða er skipum óheimilt að flytja frá sér aflamark þess árs umfram það sem flutt hefur verið til skips.

Við útgáfu Fiskistofu á leyfi til fiskiskips til handfæraveiða, samkvæmt reglugerð þessari, falla úr gildi önnur leyfi þess til að stunda veiðar til loka fiskveiðiársins 2011/2012 sem gefin eru út með stoð í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, og lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

4. gr.

Strandveiðisvæði.

Heimildir til strandveiða samkvæmt þessari reglugerð skiptast á fjögur svæði, sem eru:

  1. Eyja- og Miklaholtshreppur – Súðavíkurhreppur,
  2. Strandabyggð – Grýtubakkahreppur,
  3. Þingeyjarsveit – Djúpavogshreppur,
  4. Sveitarfélagið Hornafjörður – Borgarbyggð.

Í hlutdeild hvers svæðis koma heimildir í óslægðum botnfiski, í tonnum talið, sem hér segir:

Botnfiskur

maí

júní

júlí

ágúst

Svæði A

715

858

858

429

Svæði B

509

611

611

305

Svæði C

551

661

661

331

Svæði D

600

525

225

150

Fiskistofu er eingöngu heimilt að veita skipi leyfi til strandveiða miðað við landsvæði þar sem útgerð skips á heimilisfesti samkvæmt þjóðskrá eða fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra og skal öllum afla veiðiskips landað innan þess landsvæðis. Sama fiskiskipi verður aðeins veitt leyfi frá einu landsvæði á fiskveiðiárinu.

Náist ekki að veiða heimilaðan afla tiltekins landsvæðis í maí, júní eða júlí bætast ónýttar heimildir við aflaheimildir næsta mánuð á eftir. Fiskistofa fylgist með afla þessum og tilkynnir ráðuneytinu hvenær líklegt megi telja að viðmiðunarafla tímabils verði náð, sbr. 1. mgr.

Ráðherra skal stöðva veiðar á tilteknu svæði, þegar sýnt er að leyfilegum heildarafla verði náð, og skulu fiskiskip sem leyfi hafa á því svæði þá hætta veiðum.

5. gr.

Veiðar.

Leyfi til handfæraveiða samkvæmt reglugerð þessari eru bundin eftirfarandi skilyrðum:

  1. Óheimilt er að stunda veiðar föstudaga, laugardaga og sunnudaga. Þá eru strandveiðar bannaðar á uppstigningardag, annan í hvítasunnu og á frídegi verslunarmanna.
  2. Hver veiðiferð skal eigi standa lengur en 14 klukkustundir. Miðað er við þann tíma er fiskiskip lætur úr höfn til veiða til þess er það kemur til hafnar aftur til löndunar. Aðeins er heimilt að fara í eina veiðiferð á hverjum degi. Nái bátur ekki af óviðráðanlegum ástæðum, s.s. vegna vélarbilunar, til hafnar innan 14 klukkustunda frá upphafi veiðiferðar getur Fiskistofa þó, að fengnum skýringum útgerðar, fallist á að skilyrði þessa töluliðar séu uppfyllt.
  3. Skipstjóri skal tilkynna um upphaf veiðiferðar áður en lagt er úr höfn. Telst veiðiferð hafin þegar tilkynning er send. Skipstjóri skal einnig tilkynna um lok hverrar veiðiferðar. Tilkynningar skal senda vaktstöð siglinga, um næstu strandstöð, handvirkt um talstöð. Í tilkynningu skal ávallt koma fram úr hvaða höfn haldið er í veiðiferð og ennfremur í hvaða höfn afla er landað. Fiskiskip skal hafa um borð sjálfvirkan fjareftirlitsbúnað. Komi upp misræmi milli tilkynninga um upphaf og lok veiðiferðar og skráningar samkvæmt sjálfvirka fjareftirlitsbúnaðinum getur Fiskistofa ákveðið að hin sjálfvirka skráning skuli lögð til grundvallar við útreikning sóknar. Óheimilt er að fara í veiðiferð nema fjareftirlitsbúnaður um borð sé virkur. Bili búnaður í veiðiferð, skal strax tilkynna það til Landhelgisgæslu og halda tafarlaust til hafnar til löndunar.
  4. Aldrei er heimilt að hafa fleiri en fjórar handfærarúllur um borð. Engin önnur veiðarfæri en handfærarúllur skulu vera um borð.
  5. Á hverju fiskiskipi er aðeins heimilt að draga 650 kg, í þorskígildum talið, af kvótabundnum tegundum, í hverri veiðiferð.
  6. Skylt er að landa öllum afla í lok hverrar veiðiferðar og skal hann veginn og skráður endanlega hér á landi.
  7. Fiskistofu er heimilt að krefjast gagna um eignarhald á lögaðila, aðgangs að ársreikningum og upplýsingum úr hlutafélagaskrá til að staðreyna skilyrði 3. mgr. 3. gr.

    6. gr.

    Viðurlög.

    Brot gegn reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt VI. kafla laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

    7. gr.

    Gildistaka o.fl.

    Reglugerð þessi er sett með heimild í 6. gr. a laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, til að öðlast gildi þegar í stað og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

    Við gildistöku þessarar reglugerðar falla úr gildi reglugerðir um strandveiðar nr. 550/2009, 384/2010 og 361/2011, með áorðnum breytingum.

    Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 29. febrúar 2012.

    Steingrímur J. Sigfússon.

    Arnór Snæbjörnsson.

    B deild - Útgáfud.: 1. mars 2012