Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1188/2012

Nr. 1188/2012 21. desember 2012
AUGLÝSING
um fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns, innheimtuhlutfall í staðgreiðslu og persónuafslátt árið 2013.

Lögum samkvæmt ákveður og auglýsir fjármála- og efnahagsráðuneytið árlega fjár­hæðar­mörk tekjuskattsstofns og innheimtuhlutfall í staðgreiðslu sem er samanlagt hlutfall tekjuskatts samkvæmt lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt og meðalhlutfall útsvars eins og það er samkvæmt ákvörðunum sveitarstjórna, sbr. lög nr. 4/1995, um tekju­stofna sveitar­félaga.

Tekjuskattshlutfall á árinu 2013 verður 22,9% af tekjuskattsstofni að 2.897.702 kr., 25,8% af tekjuskatts­stofni frá 2.897.703 kr. að 8.874.108 kr. og 31,8% af tekju­skatts­stofni frá 8.874.109 kr. Meðalútsvar á árinu 2013 samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarstjórna verður 14,42%. Innheimtuhlutfall í staðgreiðslu á árinu 2013 verður því 37,32% af tekjuskattsstofni að 2.897.702 kr., 40,22% af tekjuskattsstofni frá 2.897.703 kr. að 8.874.108 kr. og 46,22% af tekjuskattsstofni frá 8.874.109 kr.

Sé tekjuskattsstofn annars samskattaðs aðila hærri en 8.874.108 kr. skal það sem umfram er skattlagt með 25,8% skatthlutfalli allt að helmingi þeirrar fjárhæðar sem tekjuskattsstofn þess tekjulægri er undir 8.874.108 kr., þó reiknast 25,8% skatthlutfall aldrei af hærri fjárhæð en 2.988.203 kr. við þessar aðstæður.

Samkvæmt A-lið 67. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal persónuafsláttur hvers einstaklings á árinu 2013 vera 581.820 krónur, eða 48.485 krónur að meðaltali á mánuði.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 21. desember 2012.

F. h. r.

Maríanna Jónasdóttir.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

B deild - Útgáfud.: 28. desember 2012