Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1173/2006

Nr. 1173/2006 11. desember 2006
REGLUR
um breytingu á prófareglum fyrir Háskólann á Akureyri.

1. gr.

1. gr. e) orðast svo:

Drög að próftöflum skulu liggja fyrir 1. september fyrir haustmisseri og 3. janúar fyrir vormisseri og birtar á sama tíma og kennsluáætlanir. Endanlegar próftöflur skulu liggja fyrir áður en kemur til staðfestingar á skráningu í námskeið. Prófstjóri sér um að birta próftöflu öllum umsjónarkennurum sem próf eiga í töflunni og stúdentum.

2. gr.

Reglur þessar eru samþykktar á grundvelli laga nr. 40/1999 um Háskólann á Akureyri. Reglur þessar öðlast þegar gildi.

Háskólanum á Akureyri, 11. desember 2006.

Þorsteinn Gunnarsson rektor.

Ingi Rúnar Eðvarðsson,
varaforseti háskólaráðs.

B deild - Útgáfud.: 12. janúar 2007