1. gr. Eftirfarandi breytingar verða á viðauka 1: - Við bætist nýr flokkur svohljóðandi og breytast númer síðari flokka til samræmis: „26. IF Flutningatæki t.d. dembarar sem ekki fara hraðar en 30 km/klst. burðargeta > 5 t ..... 5,0.“
- Tækjaheiti/þjónusta í nýjum 32. flokki hljóðar svo: „Lyftarar, lyftigeta ≥ 1,2 t en ≤ 10 t, lyftihæð > 0,4 m og stjórnandi getur ferðast með.“
- Við bætist nýr flokkur svohljóðandi: „39. NC Bílalyftur, vökvaknúnar ...... 4,0.“
- Við bætist nýr flokkur svohljóðandi: „67. SM Lyftitæki sem gengið er með eða staðið á palli, lyftigeta ≥ 1,2 t, lyftihæð > 0,4 m og < 2,5 m ...... 3,0.“
- Við bætist nýr flokkur svohljóðandi: „68. SN Flutningatæki sem stjórnandi ferðast með, lyftigeta ≥ 1.000 kg, lyftihæð < 0,4 m ...... 3,0.“
2. gr. Breyting þessi á gjaldskrá sem sett er skv. 2. mgr. 49. gr. 3. mgr. 77. gr. og 2. og 4. mgr. 80. gr. laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, nr. 46/1980, öðlast þegar gildi. Félagsmálaráðuneytinu, 18. apríl 2007. F. h. r. Ragnhildur Arnljótsdóttir. Sesselja Árnadóttir. |