Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 847/2014

Nr. 847/2014 22. september 2014
REGLUGERÐ
um verndarráðstafanir varðandi innflutning á samlokum frá Tyrklandi sem eru ætlaðar til manneldis.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörð­unar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007, frá 26. október 2007, öðlast eftir­far­andi ESB-gerð gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 743/2013 frá 31. júlí 2013 um verndarráðstafanir varðandi innflutning á samlokum frá Tyrklandi sem eru ætlaðar til manneldis.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 840/2014 frá 1. ágúst 2014 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 743/2013 um verndar­ráðstafanir varðandi innflutning á samlokum frá Tyrklandi, sem eru ætlaðar til manneldis, að því er varðar gildistíma hennar.

2. gr.

Ofangreindar reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar eru birtar sem fylgiskjöl við reglu­gerð þessa.

3. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995.

4. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

6. gr.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 22. september 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Eggert Ólafsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 26. september 2014