Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
833/2009
|
1. gr. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 592/2008 frá 17. júní 2008, um breytingu á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 1408/71 um beitingu almannatryggingareglna gagnvart launþegum, sjálfstætt starfandi einstaklingum og aðstandendum þeirra sem flytjast á milli aðildarríkja, skal öðlast gildi hér á landi að því leyti sem ákvæði þeirra lúta að lífeyristryggingum, atvinnuleysistryggingum og greiðslum í fæðingarorlofi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 9/2009 frá 5. febrúar 2009 um breytingu á VI. viðauka (félagslegt öryggi) við EES-samninginn. Reglugerðin skal gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar. Reglugerð (EB) nr. 592/2008 fjallar að hluta til um sjúkratryggingar, slysatryggingar, barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum. Í reglugerð frá heilbrigðisráðuneytinu er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um sjúkra- og slysatryggingar. Í reglugerð frá fjármálaráðuneytinu er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum. 2. gr. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 9/2009 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 16, 19. mars 2009, bls. 15, og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 592/2008 eru birtar sem fylgiskjal með reglugerð þessari. 3. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr. laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, með síðari breytingum, 6. mgr. 42. gr. og 64. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, að fenginni umsögn stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs, og 35. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 23. september 2009. Árni Páll Árnason. Ágúst Þór Sigurðsson. Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|
B-deild - Útgáfud.:
9. október 2009
|