Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 116/2015

Nr. 116/2015 5. febrúar 2015
AUGLÝSING
(IX) um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 652 frá 4. júlí 2014 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2014/2015 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélagi:

Árneshreppur.

Ákvæði reglugerðar nr. 652 frá 4. júlí 2014 gilda um úthlutun byggðakvóta Árneshrepps með eftirfarandi viðauka/breytingum:

 

a)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa innan byggðarlagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta á tíma­bilinu frá 1. september 2014 til 31. ágúst 2015.

 

b)

Ákvæði 3. málsl. 1. mgr. 6. gr. fellur brott.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 5. febrúar 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Hinrik Greipsson.

B deild - Útgáfud.: 5. febrúar 2015