Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) hefur samþykkt verklagsreglur í evrópskri hagskýrslugerð og gefið þær út sem tilmæli nr. 217/2005. Þessar reglur eru ætlaðar stjórnvöldum ESB og aðildarríkja þess og hagskýrslustofnunum, þ.e. Hagstofu ESB (Eurostat), hagstofum og öðrum stofnunum sem hafa með höndum opinbera hagskýrslugerð í aðildarríkjum ESB. Hagstofa Íslands tekur ásamt öðrum hagstofum EFTA-ríkjanna fullan þátt í evrópska hagskýrslusamstarfinu á grundvelli EES-samningsins. Tilmælin nr. 217/2005 hafa verið tekin upp í EES-samninginn en í því felst að mælst er til að verklagsreglurnar gildi fyrir íslensk stjórnvöld, Hagstofu Íslands og aðrar opinberar stofnanir sem fást við opinbera hagskýrslugerð hér á landi. Verklagsreglurnar, sem birtar eru sem fylgiskjal með auglýsingu þessari, öðlast þegar gildi og skal beita við opinbera hagskýrslugerð hér á landi, sbr. lög um hagstofu Íslands nr. 24/1913. Hagstofu Íslands, 9. júní 2006. Halldór Ásgrímsson. Hallgrímur Snorrason. Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal) |