1. gr. Almenn ákvæði. Gjaldskrá þessi er í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010 og skipulagslög nr. 123/2010. Vegna vinnu við útgáfu byggingarleyfis, framkvæmdaleyfis, við skipulagsáætlun eða breytingar á henni og/eða annarrar þjónustu skipulags- og byggingarfulltrúa sem óskað er eftir, skal greiða gjöld, sem gjaldskrá þessi kveður á um. Tekjum sveitarfélagsins skv. gjaldskrá þessari skal varið til að standa undir hluta kostnaðar þess vegna þjónustu skipulags- og byggingarfulltrúa við viðskiptavini sveitarfélagsins. 2. gr. Afgreiðslugjald. Fyrir afgreiðslu umsóknar hjá embættinu skal umsækjandi greiða kr. 9.000. 3. gr. Byggingarleyfisgjöld. Byggingarleyfisgjöld eru fyrir veitta þjónustu og verkefni byggingarfulltrúa, m.a. fyrir undirbúning, svo sem vegna nauðsynlegrar aðkeyptrar sérfræðiþjónustu, og útgáfu byggingarleyfis byggingarfulltrúa, útgáfu stöðuleyfa, útmælingu, eftirlit, úttektir, yfirferð hönnunargagna og vottorð sem byggingarfulltrúi lætur í té. Gjöld miðast við eina yfirferð aðaluppdrátta. Fyrir byggingarleyfi skal greiða gjöld, sem hér segir: | Gjald fyrir hvern m³ í nýbyggingu eða viðbyggingu | kr. | 65 | | Rúmmetragjald reiknast af brúttórúmmáli sbr. ákvæði ÍST50, án svala og C rýma. | | | | | | | | Yfirferð aðaluppdrátta. | kr. | 14.000 | | Afgreiðslugjald vegna sérhverrar úttektar | kr. | 9.000 | | Áfangaúttekt/stöðuúttekt, skýrsla | kr. | 30.000 | | Fokheldisvottorð | kr. | 25.000 | | Lokaúttektarvottorð | kr. | 43.000 | | Úttekt vegna meistaraskipta | kr. | 30.000 | | Úttekt vegna byggingastjóraskipta | kr. | 30.000 | | Gjald fyrir útkall, þegar verk reynist ekki úttektarhæft | kr. | 9.000 | | Mæling lóðar | kr. | 48.000 | | Mæling fyrir húsi á lóð | kr. | 40.000 | | Auka mæling á útsetningu húss | kr. | 40.000 | | Stöðuleyfi til eins árs | kr. | 15.000 | | Umsýsla vegna stofnunar lóðar eða breytingar á lóð | kr. | 15.000 |
Við útgáfu byggingarleyfis fyrir hús 40 m² og minna, greiðist að hámarki kr. 3.600 fyrir hvern m², vegna byggingarleyfis- og þjónustugjalda. Byggingarleyfisgjald samkvæmt gjaldskrá þessari skal greiða fyrir útgáfu byggingarleyfis. Fyrir yfirferð nýrra eða breyttra hönnunargagna eftir útgáfu byggingarleyfis greiðast kr. 8.325 til 70.000 eftir umfangi. Gjaldið greiðist við afhendingu gagna. Vegna aðkeyptrar vinnu við útgáfu byggingarleyfis verður innheimt sérstaklega samkvæmt reikningi hverju sinni. 4. gr. Gjald fyrir skipulagsvinnu. Landeigandi eða framkvæmdaraðili getur óskað eftir því við sveitarstjórn að gerð sé tillaga að deiliskipulagi eða breytingu á deiliskipulagi á sinn kostnað. Fyrir vinnu við skipulagsáætlun eða breytingar á henni að ósk landeiganda eða framkvæmdaraðila og grenndarkynningu á byggingarleyfisumsókn skal greiða eftirfarandi gjöld: | Umsýsla og auglýsingakostnaður vegna nýrrar deiliskipulagsáætlunar | kr. | 120.000 | | Umsýsla og auglýsingakostnaður vegna breytingar á deiliskipulagi | kr. | 70.000 | | Umsýsla og auglýsingakostnaður vegna óverulegrar br. á deiliskipulagi | kr. | 20.000 | | Grenndarkynning byggingarleyfisumsóknar þar sem ekki er í gildi skipulag | kr. | 25.000 |
Vegna aðkeyptrar vinnu við gerð skipulagsáætlunar eða breytingar á henni skal innheimta sérstaklega samkvæmt reikningi. Gjöld skv. 4. gr. falla í gjalddaga þegar sveitarstjórn hefur samþykkt umsókn landeiganda eða framkvæmdaraðila. 5. gr. Framkvæmdaleyfisgjald. Fyrir framkvæmdaleyfi, ákveður sveitarstjórn gjald eftir umfangi framkvæmdar, sem hér segir: | Umsýsla og yfirferð gagna | kr. | 15.000 | | Afgreiðslugjald vegna sérhverrar úttektar | kr. | 9.000 | | Áfangaúttekt | kr. | 30.000 |
Skipulags- og byggingarfulltrúi áætlar fjölda áfangaúttekta við útgáfu framkvæmdaleyfis og leggur á gjöld vegna þeirra við útgáfu leyfisins. Framkvæmdaleyfisgjald skal ekki vera hærra, en sem nemur kostnaði sveitarfélagsins við undirbúning og úttektir vegna leyfisins, sem skylt er að framkvæma. Framkvæmdaleyfisgjald samkvæmt gjaldskrá þessari skal greiða fyrir veitingu framkvæmdaleyfis. Vegna aðkeyptrar vinnu við framkvæmdaleyfi sem nauðsynleg er vegna útgáfu þess skal innheimta sérstaklega samkvæmt reikningi hverju sinni. Þegar úrskurður um mat á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 er nauðsynlegur vegna framkvæmdar, telst kostnaður sveitarfélagsins hluti af kostnaði þess við útgáfu framkvæmdaleyfis. 6. gr. Förgunargjöld. Förgunargjald gagnvart nýbyggingum verður sem hér segir: Vegna byggingarafganga: | Förgunargjald pr. m² nýbyggingar | kr. | 55 | | Förgunargjald pr. m³ nýbyggingar | kr. | 55 |
7. gr. Gjalddagi, lögveð. Gjalddagi afgreiðslugjalda er við móttöku umsókna. Gjalddagi leyfisgjalda er við útgáfu leyfis. Gjalddagi þjónustugjalda er við afhendingu gagna eða veitingu leyfis. Afgreiðslugjöld eru ekki endurkræf þótt umsókn sé synjað, leyfi falli úr gildi eða umsókn dregin til baka. Leyfis- og þjónustugjöld samkvæmt gjaldskrá þessari eru ekki endurkræf, þótt ekki verði af framkvæmd. Þó skulu áætluð þjónustugjöld endurgreidd verði ekki af framkvæmdum á gildistíma byggingarleyfis. Heimilt er að gera skriflegan samning um greiðslur. Afgreiðslu-, byggingar- og framkvæmdaleyfisgjöldum fylgir lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð og gjaldfallin gjöld má innheimta með fjárnámi. 8. gr. Verðlagsbreytingar. Gjöld skv. gjaldskrá þessari miðast við byggingarvísitölu með grunnvísitölu 100,8 stig í janúar 2011. Gjöldin taka mánaðarlegum breytingum í samræmi við breytingar á vísitölunni. Skipulags- og byggingarfulltrúi skal í upphafi hvers mánaðar leggja fram endurskoðaðar fjárhæðir skv. gjaldskrá þessari, í samræmi við auglýsingar Hagstofu Íslands um hver byggingarvísitala er hverju sinni. 9. gr. Gildistaka o.fl. Gjaldskrá þessi, sem samþykkt er af sveitarstjórn Skorradalshrepps, tekur gildi við birtingu í B-deild Stjórnartíðinda. Með samþykkt gjaldskrár þessarar fellur úr gildi gjaldskrá skipulags- og byggingarnefndar Skorradalshrepps nr. 607 með útgáfudegi í B-deild Stjórnartíðinda þann 25. júní 2008. Skorradalshreppi, 20. apríl 2011. Davíð Pétursson oddviti. |