Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 248/2015

Nr. 248/2015 12. mars 2015
AUGLÝSING
(XI) um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 652 frá 4. júlí 2014 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2014/2015 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélagi:

Vopnafjörður.

Ákvæði reglugerðar nr. 652 frá 4. júlí 2014 gilda um úthlutun byggðakvóta Vopnafjarðar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

 

a)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður:

  

Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðar­lagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðu­neytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt þannig: 28% úthlutaðs byggðakvóta skiptist jafnt milli skipa undir 1.000 brúttótonnum, sem upp­fylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar og 72% byggðakvótans skal skipt hlutfalls­lega til sömu skipa, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorsk­ígildis­stuðla, í þorskígildum talið, sem landað var á Vopnafirði á tímabilinu 1. sept­ember 2013 til 31. ágúst 2014.

 

b)

Ákvæði 1. og 2. málsl. 1. mgr. 6. gr. breytist og verður:

  

Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla á Vopnafirði sem telja á til byggðakvóta, til vinnslu innan hlutaðeigandi byggðarlags á tímabilinu frá 1. apríl 2015 til 31. ágúst 2015. Aflinn skal nema, í þorskígildum talið, jöfnu magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerð þessari.

 

c)

Ný málsgrein, 2. mgr., bætist við 6. gr., svohljóðandi:

  

Afli sem landað er á Vopnafirði á tímabilinu 1. september 2014 til 31. mars 2015 er undanþeginn vinnsluskyldu og skal Fiskistofa afhenda byggðakvóta til þeirra skipa samkvæmt vigtarnótum, jöfnu magni þess afla sem þau hafa landað, í þorskígildum talið. 7. málsl. 1. mgr. 6. gr. gildir ekki um afla sem landað er samkvæmt þessari grein.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 12. mars 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Hinrik Greipsson.

B deild - Útgáfud.: 12. mars 2015