1. gr. Fjárhæðir greiðslna samkvæmt lögum um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar skulu vera sem hér segir fyrir árið 2013: Hámarksfjárhæð tekjutengdra greiðslna skv. 1. málsl. 3. mgr. 10. gr. laganna skal nema 556.592 kr. á mánuði. Lágmarksfjárhæð tekjutengdra greiðslna skv. 2. málsl. 3. mgr. 10. gr. laganna skal nema 144.421 kr. á mánuði. Fjárhæð greiðslna til líffæragjafa í námi skv. 1. mgr. 15. gr. laganna skal nema 144.421 kr. á mánuði.
2. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 18. gr., sbr. 8. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 15. gr. laga nr. 40/2009, um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar, öðlast gildi 1. janúar 2013. Jafnframt fellur úr gildi reglugerða nr. 1227/2011, um fjárhæðir greiðslna fyrir árið 2012 samkvæmt lögum um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar. Velferðarráðuneytinu, 19. desember 2012. Guðbjartur Hannesson. Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir. |