Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 787/2009

Nr. 787/2009 4. september 2009
REGLUR
um breytingu (1) á reglum nr. 569/2009, fyrir Háskóla Íslands.

1. gr.

Á eftir 4. mgr. 38. gr. kemur ný mgr. svohljóðandi:

Þegar álit dómnefndar liggur fyrir er það sent valnefnd. Valnefnd gerir rökstudda tillögu til rektors um hvort veita beri umbeðinn framgang eða ekki. Valnefnd getur leitað umsagnar sérfræðinga á hlutaðeigandi fræðasviði.

5. mgr. 38. gr. verður 6. mgr. og 6. mgr. verður 7. mgr.

2. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar eru settar af háskólaráði skv. heimild í 3. mgr. 11. gr. laga nr. 85/2008, um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 4. september 2009.

Kristín Ingólfsdóttir.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 22. september 2009